Ég hef hér með ákveðið eftir margar ítrekaðar áskoranir frá mörgum mismunandi Gestapóum að breyta nafninu mínu aftur í hið glæsilega Don De Vito. Það var aðalega á þeim tímapunkti árshátíðarinnar þegar Tigra var næstum búin að klóra af mér andlitið að ég sannfærðist.
Þrátt fyrir heilmiklar aðvaranir frá vitnavernd, sem mæla sterklega gegn því að ég taki aftur upp mitt rétta nafn, verð ég einfaldlega að gera það til þess að halda andlitinu. En eins og ég sagði frá áður í þessu einstaklega Úlfamannslega riti þurfti ég að losa mig við öll fjölskyldutengsli á austurströnd Bandaríkjanna og í kjölfar þeirra þurfti ég að framkalla ýmsar ,,hreinsanir’’. Mér hefur því verið afneitað af ættinni og hafa nú bæði meginlands-Ítalirnir og Sikileyjingarnir (þetta tel ég glæp) tekið höndum saman um að elta mig uppi og drepa mig. Ég hef heldur aldrei verið vinsæll hjá Rússunum en ég hef átt það til að svindla á þeim. Bandaríkjastjórn hatar mig líka af lífi og sál og útsendarar þeirra eru sífellt að reyna að klekkja á mér, sérstaklega í sumar eftir að ég var með hernaðaraðgerðir gegn þeim í Kaliforníu, Arizona og Nevada, en ég yfirtók í þeirri ferð fyrir fullt og allt uppáhalds borgina mína, Las Vegas, þegar ég var staddur þarna í sumar. Þá sigldi ég einmitt undir fölsku flaggi og kynnti mig ávallt sem Dúddi og það stóð einmitt á vegabréfinu mínu sem var ástæða þess að ég komst inn fyrir landamærin.
Ég hef því ákveðið að stórefla alla öryggisgæslu í kringum mig og ráða tvöfalt lífvarðalið á við það sem er nú þegar fyrir.
Doninn kveður.
Ég veit ekki hvað þú varst að spá með að breyta nafninu aftur í Dúddi, sem mér þykir afskaplega asnalegt nafn.
Og síðan húðstrýkið þið mig bara næst og skjótið í höfuðið þegar ég svo mikið sem minnist á nafnbreytingu. Og já, þið gerið það í kjötheimum!
Ég snerti ekki á þér ef þú veldir Don de la Dúddamía eins og ég hef áður lagt til [Glottir eins og fífl]
Skál, Dúddi minn... eh, ég meina: Don.
Það var gaman að fá að hitta þig. Þú ert mikill sómapiltur. Væri ekki hægt að tala þig til að koma inn í stjórn Ungmennafélagsins Andspyrnunnar?