Samtal í sjoppunni (líka lúmsk auglýsing) við afgreiðslukonu sem heitir X
Dúddi: Hvað er Þetta?
X: Þetta er nammi
Dúddi: Er Þetta gott?
X: Þetta er ágætt.
Dúddi: Hvað kostar Þetta?
X: Þetta kostar x krónur.
Dúddi: Rosalega er Þetta dýrt, ég ætla samt að fá Þetta.
X: Þetta?
Dúddi: Nei, Þetta!
X: Hitt semsagt?
Dúddi: Já, og Þetta!
X: Hitt og Þetta þá?
Dúddi: Já.
X: Þetta verða þá X krónur.
Dúddi: Kostar Þetta svona mikið?
X: Jájá. Svona er Þetta.
Dúddi: Þá ætla ég bara að fá Þetta.
X: Þetta verða þá x krónur
Dúddi: Réttir X klink Er Þetta ekki nóg?
X: Jú, Þetta ætti að nægja.
Dúddi: Flott er. Fær sér bita Þetta er ekkert gott!
X: Ha, finnst þér Þetta ekki gott?
Dúddi: Nei, það er ekkert varið í Þetta, ég hefði átt að fá mér Hitt!
Veit það ekki hún heitir svo skrítnu nafni.
Dúddi: Hey, ég er farinn að hitta X!
Y: Það heitir engin X.
Dúddi: Jú, hún heitir X
Y: Rosalega er X asnalegt nafn.
Dúddi: Þér má alveg finnast það.
Y: En hvað ætlið þið X að gera?
Dúddi: Bara hitt og þetta.
Ég hef hvorugt smakkað enda bæði í ljótum umbúðum og fyrir sælkera eins og mig getur ekkert verið betra en umbúðirnar sýna.
Ég hef verið að reyna mitt besta en Hvæsi hefur bara svo slæm áhrif á mig! Hvæsi er ekki góður félagsskapur.