Þetta gerðist allt einn góðan veðurdag þegar ég var í sakleysi mínu á flakkinu um Gestapó, mig minnir að ég hafi verið að fara í gegnum þráðinn ,,hverjir eru inni’’ þegar allt varð allt í einu svart.
Ég vaknaði á dularfullum stað sem ég kannaðist ekkert við, en ég komst snemma að því að ég var staddur í Bandaríkjunum, óvinir ríkisins höfðu rænt mér, þeir höfðu kæft mig með klóróformi og flogið með mig til Bandaríkjanna. Höfuðpaur gengisins var típísk feit kanadrusla, auminginn sagði mig skulda sér pening, þvílík lygi! Sagði mig skulda sér fyrir eitt spilavítið sem ég hafði keypt af honum, ég keypti það nú bara á bísna rausnarlega verði að því er mér finnst, en hann talaði eitthvað um að ég hefði borgað of lítið. Kjaftæði!
Þrátt fyrir miklar pyntingar, svosem kleinuhringjaát, óhóflegar sýningar á amerískum sápuóperum og raunveruleikaþáttum, McDonalds fram úr hófi og fleira í þeim dúr tókst þeim ekki að snúa peninginn út úr mér. Þeir ákváðu þá að sækjast eftir upplýsingum um Baggalútíu í staðinn, ég sagði þeim að éta það sem úti frýs. Á tuttugasta degi ákvað ég að flýja, ég fann vélbyssu og skaut mér leið út. Því miður slapp höfuðpaurinn á þyrlunni sinni, en ég náði númerinu...
Um kvöldið þurfti ég að flýja land, af einhverjum ástæðum er ég á einhverjum 10 most wanted list þarna í Bandaríkjunum. Ég fór niður á höfn, sá þar flutningaskip á vegum Eimskipa og ákvað að kaupa mér þar far til Íslands hjá skipstjóranum. Skipverjarnir urðu ánægðir þegar ég sagði þeim hver ég er og sögðust gera hvað sem er fyrir svona háttsettan mann, ég ákvað að gera þeim tilboð sem þeir gátu ekki hafnað... Ég fékk góðan mat á skipinu, yfirleitt fisk í raspi með kartöflum og ýmist bjór eða viskí með. Einn skipverjinn átti heilann helling af Simpsons þáttum sem ég fékk oft lánaða hjá honum svo mér leiddist ekki á leiðinni til baka.
Ég er semsagt ánægður með skipverjanna en ekki eins sáttur við gestrisnina í Bandaríkjunum. Við þurfum að gera eitthvað í sambandi við þá!
Held hreinlega að þeir hafi lýs eftir Vímusi líka! [Hrökklast afturábak og felur sig]
Ill þykja oss tíðindi þau er þjer berið en eigi skal láta hugfallast. Áður óþekkt útibú óvina ríkisins hefur greinilega hreiðrað um sig þarna vestra. En þetta er víðfeðmt og fjölbreytt land með fjölmörgum góðum (fyrir óvini vora) felustöðum.
Þarna hafa staðið yfir háleynilegar aðgerðir gegn óvinum vorum en greinilega þarf að herða þær mjög [Minnist með verulegum söknuði afar skemmtilegra hernaðaraðgerða sinna þarna vestra á sl. ári gegn óvinum ríkisins].
Ég er viss um að ég hafi verið einhvers staðar þarna á austurströndinni, það ætti að þrengja þetta örlítið.
Og Kargur, ég efast ekki um það.
Hér er eitthvað sem ekki stemmir! Athugið efirfarandi:
,,Þrátt fyrir miklar pyntingar, svosem kleinuhringjaát, óhóflegar sýningar á amerískum sápuóperum og raunveruleikaþáttum, McDonalds fram úr hófi og fleira í þeim dúr ..."
Svo þessi orð hér: ,,Einn skipverjinn átti heilann helling af Simpsons þáttum sem ég fékk oft lánaða hjá honum svo mér leiddist ekki á leiðinni til baka."
Ætlunarverk óvina ríkisins var aldrei að ná einhverjum smáaurum, heldur að heilaþvo fórnarlambið í þeim tilgangi að fjölga áhangendum og útsendurum amrískrar sorpmenningar!
Simpsons er ekki amerísk sorpmenning, Simpsons er eitt af því fáa góða sem kemur frá Bandaríkjunum sama hvað hver segir! South Park er einnig í þessum hópi og ýmislegt rokk.
Hlustið ekki á hann! Hann er að reyna að tæla okkur ofan í amrísktan sorapoll!
(Því þar sem stór hluti af gríninu í Simpsons og Southpark er á kostnað amrískrar sorpmenningar, eru þessir þættir afsprengi hennar og órjúfanlegur hluti af henni. Þó eitthvað sé fyndið þýðir ekki að það sé gott.)
Simpsons er eigi af hinu illa. Ef ég ættlaði að buga einhvern kynvísann karlmann myndi ég sýna Desperate Husewifes, Charmed, Judgin Amy eða það lang versta Sex and the city... Til hamingju Donni að standast svona raunir
Æi, Bandaríkin munu falla, rétt eins og Babýlon. Það er bara spurning hvenær. Við gætum flýtt því aðeins, en það þarf í raun ekki. Það er bezt að láta þau deyja innan frá, svona eins og framsókn.