Hvað er málið með þessa galdramenn og uglur?<br /> Hefur þetta fólk alldrei heyrt talað um e-mail?
Þeir þykjast vera svo klárir en síðan kunna þeir ekki á tölvupóst! Þeir nota bara einhverjar uglur sem eru nokkra daga á leiðinni, í staðinn fyrir nokkrar sekúndur sem tölvupósturinn tekur.
Ekki væri ég til í að tilheyra þessu galdrapakki, það má bara eiga sig...
Hvað heldur þú að gerist þegar Göldróttir læra á tölvupóstinn?
Ekki myndi ég þora að opna póstinn frá þeim enda eflaust álög í e-mail formi.
[Mundar sprotann]
Manni sárnar nú við svona, viltu verða froskur? Hmm? Ha?
Við notum sko alveg tölvupóst, uglur eru bara persónulegri!
[Kíkir örstutt inn aftur]
En þá er nú lágmark að það sé eitthvað innihald sem verðskuldar titilinn 'félaxrit'.
Þetta er bara skelfilegt.
-
Æ já ég verð eiginlega að vera sammála Limbra. Þetta er ekki félagsrit. [Svífur út]
Ég er bara að reyna að viðhalda gamla stíl og standard keisarans. http://www.baggalutur.is/profile.php?mode=viewprofile&u=45&n=72
(Já , ég hef verið að glugga í gömul félagsrit)
Ertu að reyna að gera lítið úr mér með þessu "Bla bla bla..." þínu ?
Ef svo er þá vil ég endilega biðja þig um að velja þér óvini betur en þetta.
Og andskotastu svo til að reyna að vanda þig, það er skömm að horfa upp á svona rit undir formerkjum þess að þetta eigi heima á þessu annars fína vefsvæði.
Það er svona drasl sem setur fólk í vont skap og hefur til dæmis orðið valdur að einkar harðorðum þræði þar sem margir hafa einmitt tjáð sig um að fólk vill ekki hafa svona rusl hér á forsíðunni.
Ef þú heldur að ég sé einn um að finnast þetta þá skjátlast þér hrapalega, ég er bara fyrstur til að segja það við þig.
-
Uglur eru skynsamar verur og hafa vit á að forðast vondu kallana sem vilja komast yfir viðkvæmar upplýsingar. Ekki er hægt að treysta tölvum fyrir slíku.
Ég tel félagsrit ekki góðan miðil til að setja fram illa ígrundaðar spurningar, sérstaklega ef þeim fylgja engin möguleg svör eða kenningar. Spurningar án svara sem leitt gætu til umræðu ætti að beina að spjallsvæðinu, þar sem ætlast er til að fólk spjalli.
Já, eftir að hafa lesið þetta aftur þá sé ég að þetta er ekki eins sniðugt og mér fannst þegar ég skrifaði þetta. Enda í töluvert annarlegu ástandi í gærkvöldi.
Ég biðst þá bara opinberlega afsökunar á þessu félagsriti og því skal hent ef það hefur sært einhvern eða haft sjónskemmandi áhrif.
Afsökunarbeiðnin er tekin góð og gild að minni hálfu. Gott að sjá að þú sérð að þér og gerir það þig að meiri manni í mínum augum.
Þá vil ég einnig biðjast afsökunar á hörku minni. Skapið getur stundum bara hlaupið með mann í gönur (sérstaklega þegar ég fæ "bla bla bla..." í andlitið).
Nú ætla ég að lesa nýja ritið þitt og á ég passlega von á að það sé umtalsvert betra.
-