Mín skoðun!
Mér finnst vera alltof margir sem segja ekki nógu mikið af viti hérna. Það eru margir sem eru kannski búnir að vera hérna í mánuð og komnir með 300-400 innlegg. Mest eru þetta innlegg með einu orði. Sem sagt bara einhverjir leikir. Það er allt í lagi að taka þátt í þessum leikjum og þeir geta oft verið skemmtilegir, en það þarf að gera eitthvað meira.
Ég var frekar lengi að komast yfir fyrsta hundraðið og það leið frekar langur tími áður en fyrsta félagsritið kom, en ég var ennþá óbreyttur gestur með ritstíflu þegar ég varð Stríðsmangari!
Ég viðurkenni það fúslega að ég er ekkert skáld í mér og hræðilegur í þeirri list að semja ljóð og tek þess vegna lítið sem ekkert þátt í kveðist á. Ég veit samt að það eru sumir sem skrifa nánast bara í þann flokk og það er svo sem allt í lagi, þó að það sé ekki beint ég.
En fólk verður hreinlega að gera meira en bara vera í einsorðsleikjunum til að öðlast virðingu mína. (Núllið og eina stjörnu geymi ég fyrir gelgjurnar)
Doninn hefur talað.
Þetta er akkúrat það sem ég er að tala um! Gaman samt að þið skulið vera sammála mér.
Ég sé ekkert að því að stunda bara leiki og dægradvöl á Gestapó. Það er enginn skylda fyrir nýliða að skrifa sögur eða ljóð eða koma með innihaldsríka gagnrýni. Það á að vera undir hverjum og einum komið að skrifa vel og fallega, enda lýta ljót skrif þann sem skrifar, ekki þann sem les.
Kolsýrt vatn, sykur, litarefni (E 150d), sýra (E 338), bragðefni (m.a. koffein).
[Glottir lymskulega]
Vjer erum að hluta til sammála fjelagsriti þessu, það er frekar hvimleitt er 'innihaldsríkir' þræðir fyllast allt í einu af 'eins orðs innleggjum' og stuttum sviðslýsingum. Sumir þræðir eru hins vegar nánast sjersniðnir fyrir eins orðs innlegg og sviðslýsingar og ekkert að því að hafa slík innlegg þar (og a.m.k. miklu betra en að hafa þau í þráðum þar sem þau eiga ei heima).
Allir hlutir ættu hins vegar að innihalda kóbalt.