Fyrirgefið mér hvað þetta er stutt, elsku vinir.
Hvert sem maður fer hér á Gestapó þessa dagana er allt fullt af skítkasti og leiðindum. Rifrildi út af öllu mögulegu. Sumir gestir hérna virðast hreinlega vera stofnaðir til að rífast og skammast út af engu. Það hlýtur að vera erfitt til lengdar að vera svona neikvæð. Hefur þetta alltaf verið svona?
Ég hvet ykkur, Bagglýtingar, til að leiða hjá ykkur þau skrif sem fer á einhvern hátt í taugarnar ykkar. Það er hellingur af hlutum til að gleðjast yfir.
Brosið bara og hugsið jákvætt!
Og skál fyrir því að hjer sje skálað í miðri viku ! Leggjum vjer hjer með formlega til að hjer verði allsherjar gleðskapur [Kemur með fullan gám af ákavíti og ný-últrakóbaltsdufti].
Ég hef nú ekki tekið eftir þessum óeirðum. Reyndar hefur verið fjandi rólegt hérna í prófatíð.
Skál öngvu að síður.
Ég veit ekki til þess að hér hafi nokkur rifrildi farið fram... þú ert kannski bara extra vingjarnleg og bjartsýn, Pollýanna.
Hvaða skítkast er þetta. Tvímælalaust leiðinlegustu skrifin hér ever.
[Glottir við hné]
Nei annars, þú ert ágæt(t)