Hér kemur orðabók með nokkrum röngum ófyndnum nöfnum sem notuð eru á fyrirtæki, staði, hugtök og annað. Hægra megin eru réttu heitin. Vinsamlega bætið við í athugasemdum.
Actavis - Pharmaco
Afnotadeild RÚV - Innheimudeild Ríkisútvarpsins
Alcan - ÍSAL
Asperger heilkenni - Óþekkt
Atferlisfrávik - Geðveiki
B2 - Batman
B&B - Bleikt og blátt (Samúel)
B&L - Bifreiðar og landbúnaðarvélar (Bílar og Lödur)
Björk - Bristol
Branco bollur - Negrakossar
Bubbi Morthens - Ásbjörn Kristinsson
Dagur Group - Skífan
Dagsbrún - Norðurljós (Íslenska útvarpsfélagið)
DV - Vísir að dagblaði í Reykjavík
Edda útgáfa og miðlun - Mál og menning, Almenna bókafélagið, Iðunn
Efling - Dagsbrún
Evrópusambandið - Efnahagsbandalag Evrópu
Félag bókagerðarmanna - Hið íslenzka prentarafélag
Fjöltækniskólinn - Stýrimannaskólinn
FL Group - Flugleiðir
Frjálslyndi flokkurinn - Borgaraflokkurinn (Þjóðvarnarflokkurinn)
Fyrsta deild - Önnur deild
Garðabær - Garðahreppur
Geðveikt - Frábært
Guffi - Fettmúli
Háskólinn í Reykajvík - Tölvuháskóli Verzlunarskóla Íslands
HB-Grandi - BÚR
Hugvísindadeild - Heimspeki(s)deild
Húmanistahreyfingin - Flokkur mannsins
Icelandair - Flugleiðir
Iða - Nýja bíó
ITB - Ferðaskrifstofa Íslands
Íslandsbanki - Alþýðu- Iðnaðar- Útvegs- eða Verslunarbankinn (fer eftir útibúi)
Já - Símaskráin
KB banki - Búnaðarbanki
Leikbær - Liverpool
Landbúnaðarháskólinn - Bændaskólinn
Landspítali Háskólasjúkrahús Fossvogi - Borgarspítalinn
Landspítali Háskólasjúkrahús Hringbraut - Landsspítalinn
Lífland - Mjólkurfélag Reykjavíkur
Listaháskóli Íslands - Myndlista- og handíðaskólinn
Listasafn Íslands - Glaumbær
Lýðheilsustöð - Manneldisráð
NASA - Sigtún við Austurvöll
Navision Financials - Fjölnir
Nordica - Hótel Esja
Olís - BP
Menntaskólinn í Reykajvík - Latínuskólinn (Lærði skólinn)
Menntaskólinn við Sund - Menntaskólinn við Tjörnina
MEST - Steypustöðin
Miklatún - Klambratún
Mosfellsbær - Mosfellssveit
Nettó - KEA
NFS - Fréttstofa Stöðvar 2 og Bylgjunnar
Norröna - Smyrill
Nýherji - Skrifstofuvélar hf.
OG Vodafone - Tal
Óperan - Gamla bíó
Pestó - Súrhey
Pussy - Felix
Radison SAS - Hótel Saga (þ.e.a.s. Bændahöllin)
Reykjanesbær - Keflavík
Rússland - Sovétríkin (Garðaríki)
SA - VSÍ
Samfylkingin - Alþýðuflokkurinn
Samkaup - Kaupfélagið
Samkynheigður - Kynvilltur
Seðlabanki Íslands - Sænska frystihúsið
Sértækir lestrarörðugleikar - Ólæsi
Sólon - Málarinn
Sparkaup - Kaupfélag Héraðsbúa
Sparisjóður Skagafjarðar - Sparisjóður Hólahrepps
Sri Lanka - Ceylon
Starfsgreinasambandið - Verkamanansambandið
Starfslokasamningur - Þýfi
Stjórnvísi - Gæðastjórnunarfélag Íslands
Strætó BS - SVR
Stöð tvö bío - Bíórásin
Tourist Information Center - Geysir hf.
Uppi á hól stend ég og kanna - Uppi á stól stendur mín kanna
Upplýsingafræðingur - Bókavörður
Úrvalsdeild (bankadeild, búðardeild): Fyrsta deild
Vallahverfi - Sorphaugar Hafnarfjarðar
Varnarliðið - Herinn
Vatnajökull - Klofajökull
Vatnaskúfur - Kúluskítur
Vesturbyggð - Patreksfjöður
Vesturhlíðaskóli - Heyrnleysingjaskólinn
Viðskiptaháskólinn - Samvinnuskólinn
Vinabær - Tónabíó
Vinstri grænir - Alþýðubandalagið
Virðisaukaskattur - Söluskattur
Vínbúð - Ríkið
Zimbabwe - Rhódesía
Þágufallshneigð - Þágufallssýki
Þeldökkur - Blámaður
Þjóðarbókhlaðan - Melavöllur
Þjóðmenningarhúsið - Landsbókasafnið
Þriðja deild - Fjórða deild
Þúsöld - Þúsund ár
Önnur deild - Þriðja deild
Ekki má gleyma:
Cif - Jif
Fairy - Yes ultra plus
Ég vil líka kalla þúsöld árþúsund. Þúsöld er reyndar ekki svo slæmt orð þegar betur er að gáð, eins og hlewagastiR benti mér á um daginn. Orðið þúsund er dregið af ,,þúshund" sem þýðir ,,tug hundruð". Þúsöld þýðir því ,,tugöld", en mér finnst það orð ekki gott að nota og nota því árþúsund.
Ég þoli heldur ekki þegar fyrirtæki breyta engu um vöru sína, nema umbúðunum, eins og Frón og Egill Skalla. Óþolandi!
Leiðréttingar:
Efling - Dagsbrún, Sókn, Framsókn
Vínbúð - Áfengisverzlun ríkisins - ÁVR
(Tóbakseinkasala ríkisins tók til starfa 1932. Fyrirtækin voru sameinuð 1961 undir nafni Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins - ÁTVR.)
http://www.atvr.is/index.jsp?ib_page=13
Rimahverfi - Sorphaugar Reykjavíkur
Einbreið brú - Mjó brú.
Leifsstöð - Keflavíkurflugvöllur
Vatnsmýrin - Reykjavíkurflugvöllur
Keiluhöllin í Öskjuhlíð - Bóling
Álftanes - Bessastaðahreppur
Sirkus - Popp tíví
Popp tíví - Stöð 3
Sam-bíóin - Bíóhöllin, Bíóborgin, Saga bíó.
Lyf og Heilsa - Apótek
Apótekarinn - Apótek
Apótekið - Apótek
Lyfja - Apótek
Skeljungur - Shell
Þetta er sniðugt. Ég ætla að prenta þetta út og setja í rassvasann á gallabuxunum mínum.
B.Ewing: Það mætti bæta við nokkrum sambærilegum "leiðréttingum" en það er bara sparðatíningur og óþarfi.
Viðbætur ykkar beggja eru góðar og enn má bæta við:
Bíóborgin - Austurbæjarbíó
ÓB - BP
Orkan - Shell
Ego - Esso
Ikea - Mikligarður
Perlan - Hitaveitutankarnir á Öskjuhlíð
Mannauðsstjórnun - Verkstjórn
Femínisti - Rauðsokka
Þjónustugjöld - Skattahækkanir
Raunveruleikaþáttur - Óraunverulegur þáttur
Mannvistarleifar - Sorp
Þetta er snilld Dalai.
Við þetta má endalaust bæta:
Hnakki - Tsjokkó
Misþroska - Heimskur
Ofvirkur - Óþekkur
Ræstitæknir - Skúringakona
Sjálftökulið - Þingmenn
Humm, Dagur Group er nú meira en bara Skífan, það var einmitt ástæða þess að nafn fyrirtækisins var breytt.
Þetta er skemmtilegur listi. Hjer eru viðbætur:
Group - h/f
Eitthvert hótel (nafnið munum vjer eigi) - Klúbburinn
Viðskiptaháskólinn á Bifröst - Samvinnuskólinn Bifröst
Síminn/Íslandspóstur - Póstur & sími
Einna verst er mér við að einhverjum fávitanum skyldi takast að breyta Klambratúni í hið "frumlega" MIKLATÚN!
Bráðskemmtilegur og þarfur listi.
Lýðheilsustöð - Manneldisráð, áfengis- og tóbaksvarnarráð.
Fjármálaeftirlitið - Bankaeftirlitið og Vátryggingareftirlitið.
Ráð væri að birta þennan lista sem þráð í Vísindaakademíunni þegar þessi pistill fellur af forsíðu Gestapó. Gott væri ef einhver nennti að setja inn viðbætur úr kommentum.
Þetta er rétt hjá ykkur. Ég skal sjá um það gera úr þessu þráð og hafa listann uppfræðan á forsíðunni.
En ég sé enga ástæðu til að lista upp romsu þegar A gleypir B og verður að C
Þá skrifa ég bara: C = A
Þess vegna: Lýðheilsustöð = Manneldisráð (þótt Þorgrímur sé farinn að vinna hjá þeim líka)