Mig langar til að segja nokkur orð um skotveiði.
Mér finnst bara frekar ógeðfelt að það sé verið að skjóta fugla og önnur dýr. Það er bara svo kalt að vera tæta upp hold dýra með einhverjum málmkúlum skotið úr mikilli fjarlægð. Það er bara ekki náttúrulegt.
Frekar finnst mér að það ætti að éta dýr lifandi. Það er eins og náttúrann gerir þetta oftast og er lang eðlilegast.
Bangsi...þú veist að mér þykir vænt um þig og allt það...en Eyrnaslapi hefur alltaf verið uppáhaldið mitt...komstu kannski að því? Er það þess vegna sem þú myndir gera svona lagað? Hví Bangsímon hví? Við hefðum allveg getað leyst þetta friðsamlega..[Brestur í óstöðvandi táraflóð]
.
.
.
.
Ef báðir aðilar eru skotnir, er ekkert eðlilegra en að þau éti hvort annað alveg sprelllifandi.
.
En hvað það varðar að borða matinn sinn lifandi, er það hægara sagt en gert. Reyndar er það svo í náttúrunni að aðeins örfáar tegundir borða fæðu sína lifandi, þ.e. fyrir utan sjávardýr og fugla sem eru iðinn við þann kola.
.
Slöngur, Eðlur og e-r skordýr. Annars eru þetta mestmegnis upp til hópa sómadýr þegar kemur að þeim sjáfsagða borðsið, að maturinn sé ekki að kvarta og kveina eða leggja e-ð til málanna í miðjum matmálstímum.
.
Flest dýr sem veiða bráð, drepa hana eins fljótt og kvalalaust og þeim er mögulegt.
.
Enda á ekki líka matartíminn að vera stresslaus,róleg og yfirveguð stund. Hætt er við að það gangi ekki eftir með málsverðinn spriklandi og gólandi meðan á áti stendur.
.
Hvað varðar að legga sér til munns hrátt kjöt og fiskmeti er það bara nokkuð algengt. (sushi, carapaccio o.s.fv.)
Ég er ekki á móti skotveiðum ef veiðimennirnir nota bráð sína. Mér er nokk sama hvort þeir selja hana eða éta sjálfir, en sportveiðimenn sem fara á hreindýraveiðar bara til þess að 'fella tarf' eru fávitar.
Þekki mann fyrir austan sem fær 4-5 dýr á hverju ári frá forstjórum og bankafíflum sem koma til að skjóta dýrin en hafa hvorki áhuga né kunnáttu í að nýta skrokkinn. Þessa menn ætti að gefa út veiðileyfi á.
Ég persónulega gæti ekki skotið neitt lifandi og er því mjög fegin að menn eins og móðurbróðir minn sjá um að draga björg í bú.