Eru konur líka herramenn ? Varla !
Jæja, þá er ég loxins búinn að sjá League Of Extraordinary Gentlemen. Ég er nú enginn bíósérfræðingur, langt í frá, en ég er samt herramaður og sem slíkur neita ég að samþykkja að ungfrúin sem er ein af aðalpersónum myndarinnar sé herramaður. Það er bara fráleitt. Þegar ég settist niður til að horfa á þessa mynd bjó ég mig undir að sjá hvaða vitleysu sem er. Bjóst til dæmis við að sjá Kapítan Nemó og aðrar skáldsagnarverur hoppandi og skoppandi, framkvæmandi hluti sem engum mannlegum líkama var ætlað að framkvæma. En svo kom þessi tuska í andlitið á mér. Kona í herradeildinni. Ég held nú síður.
Niðurstaða. **
Hefði verið. *** Ef ungfrúin hefði haldið sig í dömudeildinni og látið karlmennina um karlmannsverkin.