Lenti í morðstuði við að vera í bíósal.
Ég var að koma heim úr bíóferð. Var að sjálfsögðu að fylgjast með stúlku nokkurri á för sinni að því að myrða gamlan vin sinn hann Bill. Mig langaði til að fara í svipaða för. Mig langaði myrða eitthvað par sem sat rétt hjá mér. FÓLK Á EKKI AÐ TALA SAMAN Í BÍÓ. Ekki nóg með það heldur hló þetta par að öllu sem gerðist og það hátt. Hefði viljað vera með hatt. Þá hefði ég sett tvo miða í hattinn og dregið hvort þeirra ég hefði drepið fyrst. En því miður var ég hattlaus og því engin úrræði til að velja hvort ég ætti að myrða. En góð mynd. O sei sei.
Veistu ég er ekkert smá sammála. Hugsa samt að ef við tvö færum í bíó myndum við kela alla myndina og fólk yrði ekkert sérlega ánægt. [Fliss]