Hef verið að íhuga að skrifa eitthvað í þessa dagbók. Mér finnst að það sé kominn tími til að játa á mig einhverjar syndir.
Núna er snemma dags hjá mér. Flestir líklega búnir að færa konunni eitthvað gott úr bakaríinu. Búnir að fara í stuttan göngutúr með litlu krúttin á heimilinu. Ég gerði ekkert slíkt, er þunnur núna. Ég fór í útreiðartúr um daginn. Núna verkjar mig í nárann, mikið stuð og mikil gleði. Úff, að skrifa í dagbók krefst æfingar. "Enginn verður óbarinn Laxness"
[Laumast hér inn og Syngur hástöfum]
Ring ring ring ring ring ring ring BANANAPHONE!!
Jahhá...er að myndast lítið laumupúkaskot hér. Kjánar eruð þið nú. [Flissar]
Já þetta er nú meira... ég legg til að viðmiðun um almennilegt laumupúkaskot verði 10 svör... þetta er því komið formlega inn í laumupúkaminni mitt allavega... skál!
[Hvíslar] Búú, þetta fer að nálgast hálft hundrað held ég bara.
[Íhugar að setja laumupúkabókhaldið til endurskoðanda vegna umfangs]
Þýðir tillagan að það ættu að vera 10 svör frá 10 mismunandi aðilum eða bara 10 svör, þess vegna frá sama aðila?