— GESTAPÓ —
Í uppáhaldi:
Félagsrit:
Texi Everto
Heiðursgestur og  skriffinnur.
Sálmur - 5/12/07
Súrar Gúrkur

Súrar gúrkur eru ekki góður matur, nema ef þú ert mjög svangur.

:10
í upphafi var borðið
og borðið var súrt

Síðan var því dýft í sýróp - og kastað í vegg
-og allir klöppuðu og sögðu "þetta er æði"

Þá sagði einn "Hey ég veit, komum í hermuleik - ég geri eitthvað og svo gera allir eins"
Allir sögðu "Þetta er æði!"
Allir bjuggu svo til sinn eigin hermuleik

Einn gerði sig reiðan, annar gerði sig sniðugan
Allir hinir sögðu "Vá - þetta er eins og í einhverskonar leikriti, nema í tölvunni"
Einn hætti.

Einn hvíslaði "Hey, komum og felum okkur fyrir öllum hinum"
Hinir hvísluðu "Híhíhíhíh, æði"

Einn sagði "Ég er Guð!"
Annar sagði "Ég vil líka vera Guð"
Hinn sagði "OK, þú mátt líka vera Guð en þú ert þá Guð2.0"
Einn enn sagði "Ég er Guð3.0"
Enn einn sagði "Ég er Djöfullinn"

Einn sagði "Það eru reglur!"
Djöfullinn sagði "FOKK reglur!"
Allir sögðu "ÞAÐ ERU REGLUR!"

Einn sagði "Þetta er ömurlegt, þið eruð öll ömurleg"
Þá sagði einhver annar "ÞÚ er ömurlegur!"
Allir hinir sögðu "Þetta er ömurlegt"
Einn sagði "Þið eruð öll fífl og ég er hættur"
Allir hinir sögðu "Þetta er ömurlegt"

Einn sagði "Hey, ég er asnakjúklingur!"
Annar sagði "Það er bannað að vera asnakjúklingur, þú átt að vera gáfnakjúklingur"
Allir hinir sögðu "Já..., þú ert gáfnakjúklingur"

Einn setti á sig Kábboj hatt og var flottastur.
Hann sagði "ég er flottastur!"
Og allir sáu að það var satt.
Og allir vildu vera hann.

Og hann sagði "Komið til mín, í mér getum við verið eitt. Því sjá ég boða ykkur fögnuð því ég er kærleikurinn og hamingjan. Ég bíð ykkur að þyggja líkama minn sem tákn um ævarandi ást mína á ykkur. Í gegnum mig skuluð þið hljóta líkn og eylíft líf. Því þið eruð lömbin mín og ykkur skal ekkert skorta"

Og svo glotti hann eins og fífl á meðan lömbin hans skunduðu sæl og rjóð inn í næsta sláturhús. Hann varð loks ríkur maður á sölu kærleiksríkra og hamingjusamra lambalæra en heimurinn hafði aldrei áður séð slíka list. Eða fengið jafn mikla matarlyst.

   (14 af 52)  
5/12/07 20:01

Lepja

Algjört skáld.

5/12/07 20:01

krossgata

Eylíft? Er það líf á eyju?

5/12/07 20:01

Garbo

Geðveikt!

5/12/07 20:02

hlewagastiR

Mér finnst einkennilegt að það fáist ekki almennilegar, heilar, litlar súrar, póskar gúrkúr í glerdollum í Krónusi. Þetta er mest seldi matur í Póllandi og þær eru fáránlega góðar, ólíkt þessum stóru, niðursneiddu, dönsku gúrkum í glerdósum sem þeir selja. Nú er drúgur hluti viðskiptavina Krónuss og enn drýgri hluti starfsfólksins Pólverjar og þeir ættu nú að geta hafa bent innkaupastjórnunum á að þetta myndi auka veltuna. En neinei, í staðinn þarf maður að ná í þetta í Melsunni eða Nógaftúni fyrir morð fjár.

5/12/07 20:02

Upprifinn

Svo vær fínt að fá popp eða kannski þykkvabæjarflögur.

5/12/07 21:00

Texi Everto

Ég hló.

5/12/07 21:02

Bleiki ostaskerinn

Og er boðið upp á súrar gúrkur með lambakjötinu?

5/12/07 21:02

Nermal

Ég veit allaveganna að mér þykja súrar gúrkur vondar!

5/12/07 21:02

krossgata

[Klórar sér í höfðinu]
Ég kaupi reglulega almennilegar, heilar, litlar, súrar gúrkur í stórum glerdollum í Bónusi. Veit ekki hvort þær eru pólskar, en góðar eru þær.

6/12/07 04:00

Regína

Af hverju var ég ekki búin að lesa þetta fyrr?

6/12/10 07:01

Texi Everto

goto :10

Texi Everto:
  • Fæðing hér: 15/2/05 14:32
  • Síðast á ferli: 16/1/24 09:04
  • Innlegg: 4600
Eðli:
Sæl og blessuð öllsömul, gaman að sjá ykkur.
Á ég ekki fínan hatt? - Nei annars, þessi rönd er ekkert flott! Enda var hann bara kauptaður á Kanarí hérna um árið - svona til að ganga í augun á stelpunum. Enginn les þetta. Jú, víst, ég les þetta reglulega. Ein sagði að ég minnti hana á Burt Reynolds og ég var bara ánægður með það, hann var flottur í Canonball Run.
Fræðasvið:
Brennimerkingar, uppdráttur og laumupúkun (vinsamlegast ekki segja neinum frá þessu með laumupúkunina) Og ég er ekki kallaður Taxi í frístundum! Og öll apaskottin í laumupúkaleiknum eru í mafíunni nema einn, Þessi nýjasti var bara vannabí en svo fékk hann að vera með! En ég keyrði einu sinni taxa til skamms tíma. Svo stoppaði löggan mig og þá var gamanið búið. Ég sat svo einu sinni inni til skamms tíma.
Æviágrip:
Fæddur, flengdur og brennimerktur í Texas árið 1893. Brosi krónískt eins og álfur og átti því erfitt uppdráttar í Texó. Eftir að ég flutti til Íslands hef ég hinsvegar átt afar auðvelt uppdráttar - held það sé hatturinn og álfatrúin en röndin er til trafala!
Laumupúkaþráður settur 6. mars 2008!
Fyrstur tekur til máls; Texi Everto:
Komið hjartanlega sæl og blessuð á þennan sérdeilis ósanngjarna laumupúkaþráð.
Næsti mælandi á skrá er ... Texi Everto.
[Texi Everto: 23.4.2008] Þakka þér Texi, nú ég vil byrja á því að tjá ánægju mína með þennan sérdeilis laumulega laumupúkaþráð - og vil ég hvetja sem flesta til að taka virkan þátt í honum. Að lokum vil ég ljúka máli mínu með þessum lagstúf - Ljómvelskul ljiddali ljeið inn í Ljómabolg, ljændi og ljupplaði ljófum og ljadílum.
[Texi Everto: 4.5.2008]Sæl... eh... systkini? Texar! Það er ekki ofsögum sagt að þetta sé sérdeilis ósanngjarn laumupúkaþráður. En meinlega skemmtilegur er hann. Myndi það kallast meinfyndið? Samt svo augljós og dulinn í senn. Stórkostlegt. Stórfenglegt.
[Texi Everto: 4.5.2008] - Vægast sagt er þetta magnaður laumu þráður. En eðli síns vegna er ekkert víst að hann verði sérlega langur. Það má ætla að svona textabox hafi hámark á stafasjölda, eða þá að í gagnagrunninum rúmist takmarkað magn af stöfum.
[Texi Everto: 4.5.2008 19:28] Það er merkilegt að erkilaumupúki eins og ég skuli ekki hafa fundið þennan laumupúkaþráð fyrr, sérstaklega af því að hann var stofnaður af mér sjálfum (þ.e. mér Texa en ekki mér mér). En þetta er a.m.k. ný og merkileg tegund af laumupúkaþræði <Ljómar upp>.
[Texi Everto: 14.5.2008] Háæruverðugi Texi, Texar og aðrir Texar. Það gleður mig að tilkynna ykkur að ég hef afráðið að brúka nokkur uppátæki. Vinsamlegast látið ykkur ekki bregða við sóðaskapinn. Góðar stundir.
[Texi Everto: 20.05.2008] Ég, Texi Everto, er snillingur og ég mun halda áfram að vera snillingur þangað til ég dey!
[Texi Everto: 24.05.2008] Sammála síðasta ræðumanni! Athyglisverð laumupúkun svo ekki meira sé sagt.
[Texi Everto: 17.09.2008]Í fyrsta sinn sem ég skrifa hér, mjög skemmtilegur laumupúkaþráður...
[Texi Everto: 13.10.2008] Athyglisvert, athyglisvert.
[Texi Everto: 11.11.2008]Ég verð að vera sammála því að þetta er mjög athyglisvert. Og á meðan ég man þá vildi ég bara segja ykkur að ég er bestur.
Þetta er glæsilegasta æviágrip allra tíma og enginn skyldi efast þó að tími skyldi gefast. knús á línuna.
[Texi Everto: 22.12.2008] Ótrúlegt alveg hreint hvað ég er gleyminn! Ég var alveg búinn að gleyma þessum laumupúkaþræði. Eins gott að ég setji eitthvað inn á hann snöggvast svo ég gleymi honum ekki endanlega! Gleðileg jól, allir Texar.
[Texi Everto: 29.01.2009] Í þessum töluðu orðum er ég að laumupúkast, ekkert að því.
[Texi Everto: 01.02.2009] Hvað er ég að rugla? Töluðum orðum? Er ég að tala við sjálfan mig? Eins gott að Blesi heyrði ekki í mér, hann myndi bera mig beinustu leið á ákveðna stofnun!
[Texi Everto: 11.09.2009] Til hamingju með daginn.
[Texi Everto: 27.03.2010] This is.. TEXIIIII!
[Texi Everto: 18.05.2010] Úff bara. Allar þessar útreiðar og engin ljósaskipti? Æ jæja ég fer bara upp á Bakbrotsfell. Þau eru alltaf fallegust þar.
[Texi Everto: 09.02.2011] Ansans ári. Ljósaskiptin eru eitthvað svo dimm á Bakbrotsfelli. Nei, þá held ég að þau Gestapósku séu skárri. Segir maður ekki annars Gestapósku? Eða var það gestapósku? Eða eitthvað allt annað? Úff bara. Ég verð að fara að gera eitthvað í þessum minnismálum.
[Texi Everto: 09.03.2011] Bara af því að það er alþjóðlegi laumupúkadagurinn þá langaði mig að óska sjálfum mér til hamingju með daginn. [Brestur í óstöðvandi grát.]
[Texi Everto: 15.04.2011] Æ, Texi minn, ekki gráta, ég verð svo leiður þegar ég græt. Komdu frekar með mér og lesum allt skemmtilega æðislega dótið!!!
[Texi Everto 20.10.2015] Ég er búinn að gleyma hvort ég var búinn að finna þennan laumupúkaþráð áður [Brestur í óstöðvandi grát]. Man einhver hvort ég var búinn að finna hann áður? [Klórar sér í hattinum].