Tilvitnun:
"Þú ert Léttfeti heimsins, þú ert algert stóðhross, þú ert skeifa í burstabæ, þú ert hnakkurinn sem hefði ekki einu sinni átt það skilið að lenda á haugunum, þú ert Kántrístjarna!"
Baun fer bráðum að hætta að jóðla hérna á Sléttunni. Þetta fer að verða gott. Baun mun þó tilkynna það betur síðar. Vafalaust verða margir fegnir jóðlleysi baunarinnar og telja að farið hafi fé betra. Það er líka vafalaust rétt. Aðrir geta sent baun skeyti.
Kúrekar hér á Sléttunni eru ósparar á notkun sorayrða á borð við; „hrossahár", „farðu á bak“, „stórkostlegt“, „vel gefinn“, „Kántrístjarna“, „blómarós“, „hysmi“, „fæðingarséni“, „Vigdís Finnbogadóttir“ og fleira í þeim dúr, þegar aðrir snillingar jóðla eitthvað sem samræmist ekki þeirra tóneyra. Hvers konar heift og mannvonska er þetta eiginlega?
Baun hefur orðið var við að hér fara fram allt of sposkar umræður. Hvar er gamla, góða „bull og vitleysu“ Sléttan? Þá var ekki rætt um gresjuna, súrkál eða aðra eins vitleysu sem við fáum yfrið nóg af dags daglega. Það er ekkert gaman að tala um kosmólógíska hluti. Það er óttalegt vindrassgat. Sem er leiðinleg og ófreskja. Því hefur baun fram til þessa jóðlað eintóma snilldartóna og uppskorið eins og baun hefur sáð.
Undanfarið hefur baun sem sagt orðið var við gól á Sléttunni. Baun er kannski ekki barnanna best í þeim efnum og hefur látið ýmislegt flakka sem baun er ekki vön að láta út úr sér. Vill baun biðjast afsökunar á því, sérstaklega hafi jóðl baunar sært eða kvalið einhvern.
Baun leggur til að við gleymum allri neikvæðni og særindum og horfum björtum augum fram á veginn, því nú er vor og brátt kemur sumarið með betri tíð. Vonandi hafa það allir sem allra best í sumar og framvegis. Baun vill óska öllum Slétturum, ritstjórn og fjölskyldum gleðilegs sumars.
Sérstaklega vill baun þó þakka einum Sléttara sem er henni mjög kær:
Þú ert falleg, þú ert önd,
og þrammar um með staf í „hönd“.
Þú ert epli, þú ert ber,
þó ei kjarnann nokkur sér.
Afsakið dónaskapinn og líka það hve bragurinn er lélegur. Hugurinn á bakvið ætti að bæta fyrir það.
Ég mótmæli þessu einelti, þessa ómerkilega drulludúnks og skítalabba. Hann er hér að bæta gráu ofan á svart, með því að taka samansoðna skrumskælingu mín úr nokkrum félagsritum vinar míns Jóakims og skrumskælir skrumskælingu mína enn frekar svo þetta er þvílík Hannesun að lengra verður ekki náð. Ég bið Jóakim afsökunar á mínu framlagi, sem var þó samið að hans eigin ósk, og getur því strangt tekið ekki talið til eineltis. Framlag Texa er aftur á móti slíkt einelti og vanvirðing við Jóakim að ég skammast mín fyrir að vera ekki löngu búin(n) að skrifa uppsagnarbréf eins og margir mætir menn hafa gert hér.
Hér eiga orð góðskáldsins loksins við með réttu:
"Þú ert sori heimsins, þú ert algert nóboddí, þú ert prentvilla í fæðingarvottorði, þú ert brundurinn sem hefði ekki einu sinni átt það skilið að lenda í lakinu, þú ert persona non grata!"
Ég gagnrýni Texa ekki fyrir hans súrrealíska eða sýrða texta. Handbragðið er gott og um margt bráðskemmtilegt ef við horfum framhjá persónulegri árás hans á Jóakim. Þetta er sköpun og/eða afurð sem enginn ástæða er til þess að banna eða vanvirða. Ef fólki líkar ekki afurðin, þá kaupir það hana ekki, þ.e. les hana ekki í þessu tilfelli. Texi situr þá einfaldlega uppi með ólesin og ókommenteruð féllagsrit. Kannski gefst hann upp og fer að semja lofrullur um hve bagglýtingar séu dásamlegir og uppsker mikinn lestur, boð á mannamót o.sv.frv. og endar jafnvel á þingi. Kannski heldur hann áfram og deyr vinalaus og einmana og fær legstað í ómerktri gröf. Er svo uppgvötvaður eftir 100 ár og talinn höfuðskáld 21. aldar. Hver veit?
[Glottir verulega] Það þarf nú ekki mikinn snilling til að skilja hver er ástæðan fyrir þessu riti. Og þar eð Skrabbi hefur ekki unnið sér inn neina respekt af minni hálfu, þá læt ég það alveg vera að lasta Texa fyrir útúrsnúninginn.
Þetta er náttúrulega svívirða að breyta félagsriti svona og búa til nýtt... eðlilegt að Skrabbi sé svekktur... [Glottir eins og fífl]...
Ortar hafa verið 2 vísur í síðustu félaxritum. Gleymum því ekki.
[Huxar vandlega]