— GESTAPÓ —
Í uppáhaldi:
Félagsrit:
Texi Everto
Heiðursgestur og  skriffinnur.
Sálmur - 2/12/06
Þú ert sjálfur Glúmur

Ég ætlaði nú að flytja þetta á Þorrablótinu, ef ég hefði mætt.

Glúmur yfir öllum hérna vakir,
án hans teldumst við nú varla hálf.
Hann sér um að höldar séu spakir.
Hann er Baggalútsins yfirsjálf.
Þú skalt ekki, þrjótur, í hann narta.
Þú ert sjálfur Glúmur innst í hjarta.

Sem innflytjandi velktist þú í vafa,
hvort væri þessi heimur blekking, tál.
En loks þér tókst að losna við þann klafa,
og lést af hendi hluta úr þinni sál.
Þú skalt ekki þræta fyrir meinið.
Þú ert sjálfur Glúmur inn við beinið.

Brátt mun skína í Glúm í gegnum orðin,
þó greinist það nú varla fyrst um sinn.
Hverfur af þér barnafituforðinn,
sem fylgdi þér er komst þú hingað inn.
Þú skalt engan þvo með tjöru og fiðri.
Þú ert sjálfur Glúmur undir niðri.

Að lokum ertu laus úr öllum viðjum.
Þér lærist það að við hér teljumst eitt.
Samansafn af guðum bæði og gyðjum,
sem Glúmur hefur við sinn anda skeytt.
Það er alltaf þú sem hefur völdin.
Þú ert sjálfur Glúmur bak við tjöldin.

   (32 af 52)  
2/12/06 16:01

Hexia de Trix

Amen, félagi Glúmur.

2/12/06 16:01

krossgata

Orð í tíma töluð. Skál félagi yfirsjálf!

2/12/06 16:01

Texi Everto

En fallegur sálmur sem ég hef samið. Bravó, bravó.
[Þurrkar lítið tár]

2/12/06 16:01

Skabbi skrumari

Þú getur bara sjálfur verið Glúmur... hehe... gaman að þessu... Skál...

2/12/06 16:01

Texi Everto

Afhverju skrifarðu feitletrað Skabbi?

2/12/06 16:01

Skabbi skrumari

Veit það ekki... líklega er ég bara elliær...

2/12/06 16:01

Texi Everto

[Spilar á munnhörpu fyrir Skabba gamla]

2/12/06 16:01

Skabbi skrumari

[Byrjar að kyrja baunaljóð fyrir Texa]

Eina kalda eðalbaun
á ég nú í kaldri dós
það er erfið rislág raun,
að rækta úr henni litla rós.

2/12/06 16:01

Texi Everto

Takk Skabbi, baunaljóð eru aldrei of oft kveðin

2/12/06 16:01

Skabbi skrumari

[heldur áfram]

Baunir úr blásvartri dollu,
blanda ég við kjöt af rollu,
bragðið það bætir,
bragðlauka kætir
en fnyk mjög úr endanum ollu.

2/12/06 16:01

Regína

Svo þú ert Texi! [roðnar] Ég meina Glúmur.

2/12/06 16:01

Skabbi skrumari

Hver er ekki Glúmur...

2/12/06 16:01

Regína

Af hverju er ég farin að skrifa feitletrað líka?

2/12/06 16:01

Texi Everto

Þetta er góð spurning Regína. Afhverju ertu að skrifa feitletrað?

2/12/06 16:01

Regína

Ég er ekki að skrifa feitletrað! Ég meina, ég ... æ...

2/12/06 16:01

Skabbi skrumari

[fær áfall yfir öllu þessu þykka letri]

2/12/06 16:01

Goggurinn

[Þrífur] Ansans vesen í ykkur...

2/12/06 16:01

Glundroði

Ég hefði nú haldið að Texi ætti að bjóða upp á þorrblót í Mexíkóhreppi. Þar ku vera vinsælt að kýla sig út á tei. Þar gæti hann komið þessari frábæru andans afurð á framfæri.

2/12/06 16:02

Hakuchi

Það er hámark hégómans að yrkja lofkvæði um sjálfan sig. Skammastu þín Texi.

2/12/06 16:02

bauv

Helvítis kommúnistarnir.

2/12/06 16:02

Vladimir Fuckov

Þetta er stórskemmtilegt og hefði eins og Texi benti á sómt sjer vel á þorrablóti, líkt og annáll Offara.

Er ekki annars tímabært að endurskilgreina orðið þorrablót og láta það merkja að blóta það að þorrinn sje búinn, að sakna þorrans ? Þá er hægt að halda þorrablót hvenær sem er.

2/12/06 17:00

Regína

Það mætti þá allt eins halda þorrablót í maí.
Kannski skemmtilegra í mars.

2/12/06 17:00

Tina St.Sebastian

[Tárast] Bravó!

2/12/06 18:00

Gvendur Skrítni

[Kaupir sér kábboy hatt] Afar smekklega gert! [Tekur ofan hattinn fyrir Texa]

2/12/06 18:00

Jóakim Aðalönd

Skál fyrir Glúmi!

2/12/06 19:01

Glúmur

Þína skál Texi, þú ert óútreiknanlegur andskoti. [Ljómar út og suður!]
Ég verð að segja að þetta þykir mér sérdeilis laglega gert. [Brýtur ljóðið pent saman og stingur í vestisvasann]
Verst hvað þetta fer illa í montið í mér, ég er hræddur um að ég eigi ekki eftir að bíða þess bætur að hafa barið þetta augum. Skál fyrir ykkur öllum, höfðingjar og hefðardömur öll með tölu. [Tekur ljóðið úr vasanum og otar því að nærstöddum]

3/12/06 03:01

Texi Everto

Æ, Glúmur. Þetta var eina eintakið. Þú verður að passa vel upp á það.

Texi Everto:
  • Fæðing hér: 15/2/05 14:32
  • Síðast á ferli: 16/1/24 09:04
  • Innlegg: 4600
Eðli:
Sæl og blessuð öllsömul, gaman að sjá ykkur.
Á ég ekki fínan hatt? - Nei annars, þessi rönd er ekkert flott! Enda var hann bara kauptaður á Kanarí hérna um árið - svona til að ganga í augun á stelpunum. Enginn les þetta. Jú, víst, ég les þetta reglulega. Ein sagði að ég minnti hana á Burt Reynolds og ég var bara ánægður með það, hann var flottur í Canonball Run.
Fræðasvið:
Brennimerkingar, uppdráttur og laumupúkun (vinsamlegast ekki segja neinum frá þessu með laumupúkunina) Og ég er ekki kallaður Taxi í frístundum! Og öll apaskottin í laumupúkaleiknum eru í mafíunni nema einn, Þessi nýjasti var bara vannabí en svo fékk hann að vera með! En ég keyrði einu sinni taxa til skamms tíma. Svo stoppaði löggan mig og þá var gamanið búið. Ég sat svo einu sinni inni til skamms tíma.
Æviágrip:
Fæddur, flengdur og brennimerktur í Texas árið 1893. Brosi krónískt eins og álfur og átti því erfitt uppdráttar í Texó. Eftir að ég flutti til Íslands hef ég hinsvegar átt afar auðvelt uppdráttar - held það sé hatturinn og álfatrúin en röndin er til trafala!
Laumupúkaþráður settur 6. mars 2008!
Fyrstur tekur til máls; Texi Everto:
Komið hjartanlega sæl og blessuð á þennan sérdeilis ósanngjarna laumupúkaþráð.
Næsti mælandi á skrá er ... Texi Everto.
[Texi Everto: 23.4.2008] Þakka þér Texi, nú ég vil byrja á því að tjá ánægju mína með þennan sérdeilis laumulega laumupúkaþráð - og vil ég hvetja sem flesta til að taka virkan þátt í honum. Að lokum vil ég ljúka máli mínu með þessum lagstúf - Ljómvelskul ljiddali ljeið inn í Ljómabolg, ljændi og ljupplaði ljófum og ljadílum.
[Texi Everto: 4.5.2008]Sæl... eh... systkini? Texar! Það er ekki ofsögum sagt að þetta sé sérdeilis ósanngjarn laumupúkaþráður. En meinlega skemmtilegur er hann. Myndi það kallast meinfyndið? Samt svo augljós og dulinn í senn. Stórkostlegt. Stórfenglegt.
[Texi Everto: 4.5.2008] - Vægast sagt er þetta magnaður laumu þráður. En eðli síns vegna er ekkert víst að hann verði sérlega langur. Það má ætla að svona textabox hafi hámark á stafasjölda, eða þá að í gagnagrunninum rúmist takmarkað magn af stöfum.
[Texi Everto: 4.5.2008 19:28] Það er merkilegt að erkilaumupúki eins og ég skuli ekki hafa fundið þennan laumupúkaþráð fyrr, sérstaklega af því að hann var stofnaður af mér sjálfum (þ.e. mér Texa en ekki mér mér). En þetta er a.m.k. ný og merkileg tegund af laumupúkaþræði <Ljómar upp>.
[Texi Everto: 14.5.2008] Háæruverðugi Texi, Texar og aðrir Texar. Það gleður mig að tilkynna ykkur að ég hef afráðið að brúka nokkur uppátæki. Vinsamlegast látið ykkur ekki bregða við sóðaskapinn. Góðar stundir.
[Texi Everto: 20.05.2008] Ég, Texi Everto, er snillingur og ég mun halda áfram að vera snillingur þangað til ég dey!
[Texi Everto: 24.05.2008] Sammála síðasta ræðumanni! Athyglisverð laumupúkun svo ekki meira sé sagt.
[Texi Everto: 17.09.2008]Í fyrsta sinn sem ég skrifa hér, mjög skemmtilegur laumupúkaþráður...
[Texi Everto: 13.10.2008] Athyglisvert, athyglisvert.
[Texi Everto: 11.11.2008]Ég verð að vera sammála því að þetta er mjög athyglisvert. Og á meðan ég man þá vildi ég bara segja ykkur að ég er bestur.
Þetta er glæsilegasta æviágrip allra tíma og enginn skyldi efast þó að tími skyldi gefast. knús á línuna.
[Texi Everto: 22.12.2008] Ótrúlegt alveg hreint hvað ég er gleyminn! Ég var alveg búinn að gleyma þessum laumupúkaþræði. Eins gott að ég setji eitthvað inn á hann snöggvast svo ég gleymi honum ekki endanlega! Gleðileg jól, allir Texar.
[Texi Everto: 29.01.2009] Í þessum töluðu orðum er ég að laumupúkast, ekkert að því.
[Texi Everto: 01.02.2009] Hvað er ég að rugla? Töluðum orðum? Er ég að tala við sjálfan mig? Eins gott að Blesi heyrði ekki í mér, hann myndi bera mig beinustu leið á ákveðna stofnun!
[Texi Everto: 11.09.2009] Til hamingju með daginn.
[Texi Everto: 27.03.2010] This is.. TEXIIIII!
[Texi Everto: 18.05.2010] Úff bara. Allar þessar útreiðar og engin ljósaskipti? Æ jæja ég fer bara upp á Bakbrotsfell. Þau eru alltaf fallegust þar.
[Texi Everto: 09.02.2011] Ansans ári. Ljósaskiptin eru eitthvað svo dimm á Bakbrotsfelli. Nei, þá held ég að þau Gestapósku séu skárri. Segir maður ekki annars Gestapósku? Eða var það gestapósku? Eða eitthvað allt annað? Úff bara. Ég verð að fara að gera eitthvað í þessum minnismálum.
[Texi Everto: 09.03.2011] Bara af því að það er alþjóðlegi laumupúkadagurinn þá langaði mig að óska sjálfum mér til hamingju með daginn. [Brestur í óstöðvandi grát.]
[Texi Everto: 15.04.2011] Æ, Texi minn, ekki gráta, ég verð svo leiður þegar ég græt. Komdu frekar með mér og lesum allt skemmtilega æðislega dótið!!!
[Texi Everto 20.10.2015] Ég er búinn að gleyma hvort ég var búinn að finna þennan laumupúkaþráð áður [Brestur í óstöðvandi grát]. Man einhver hvort ég var búinn að finna hann áður? [Klórar sér í hattinum].