— GESTAPÓ —
sphinxx
Fastagestur.
Dagbók - 1/12/05
Dagdraumur

furðulegur Draumur

Í draumnum er ég staddur á eyju með einhverjum slatta af fólki, við virðumst sæta árásum
einhverja fljúgandi höfðinga sem droppa á okkur eldsprengjum grjótum og fleiri skemmtilegheitum.
En sá hluti sem ég man einna best eftir er þegar ég og 2 tröllvaxnir bræður förum í glímu.
Ég misskildi eitthvað og held að þetta sé bara barátta jahh.. uppá lífi og limi þeir eru jú á annann metra á hæð
rauðhærðir og svo helmassaðir að þeir hefðu getað brotið á mér eggið milli brjóstvöðvanna.
Það er samankominn hópur af fólki að horfa, stór hringur er dreginn kringum okkur og okkur ætlað að kljást í honum, í miðjum hringnum eru 2 stórir trékassar, hvað þeir innihalda veit ég ekki.
Okkur er stillt upp við línuna gegnt hvorum öðrum og kassarnir í miðjunni, ég er frekar taugaveiklaður því ég veit ekkert í hvern fjárann ég er kominn.
Það kom hár hvellur og þetta er byrjað, við hlaupum að kassanum ég stekk á þann stóra og hann hlunkast í jörðina og fyrst hann er kominn niður þá sprett ég upp og hendi mér með olnbogann í bringuna á honum enn...
STOPP stopp segir bróðir hans svona á ekki að gera þetta og gengur að miðjum hringnum skutlar lokinu af einum kassanum og þá mér til mikillar furðu og undrunar sé ég að hann er fullur af Bláum Ópal.
okkur er stillt upp aftur og ég hugsa með mér hvurn fjandann við eigum að gera með 2 kassa fulla af ópal?
Aftur kemur hvellurinn og við hlaupum að miðjunni og rauðhærða tröllið rífur upp lokið á hinum kassanum ég stekk í þann sem er opinn ríf upp bláan ópalpakka og sturta honum uppí mig næ í annann pakka og geri það sama aftur tygg 2var og horfi á þann rauðhærða. Og mér til mikillar undrunar er hann að gera það nákvæmlega sama og ég.
Augu okkar mætast við tökum báðir stökk hann grípur í herðarnar á mér og við...............

SPÝTUM BLÁUM ÓPAL Í AUGUN Á HVOR ÖÐRUM!!!

Svo vakna ég við að mamma er að spurja mig hvort ég ætli ekki að fara vakna í vinnunna því hún er jú stödd
hérna í bænum í heimsókn hjá prinsinum.

Enn eitt skal ég segja ykkur að það svíður að fá bláan ópal í augun.

MEIRA AÐ SEGJA Í DRAUMI!

   (5 af 5)  
1/12/05 20:02

Offari

Þessi íþrótt fer því miður að líða undir lok.
Skemmtilegur draumur.

1/12/05 22:00

Jóakim Aðalönd

Vá! Hvað fékkstu þér áður en þú fórst að sofa?

1/12/05 22:01

sphinxx

Ekkert merkilegra en venjulega kom af næturvakt og tannburstaði mig , keðjureykti 3 sígarettur þambaði lítra af vatni og fór að sofa.
Ekkert óeðlilegt við það.

1/12/05 23:00

dordingull

Hefur þú látið rannsaka tannkremið?

1/12/05 23:01

Berserkur

Blessuð sé minning bláa ópalsinns.

sphinxx:
  • Fæðing hér: 14/1/05 11:31
  • Síðast á ferli: 10/2/10 00:07
  • Innlegg: 435