Kommúnistaflokkur Baggalútíu færir ykkur mikilvægar fréttir.
Heilir og sælir, félagar og ófélagar, vinir og óvinir, kommar og kapítalistar.
Kommúnistaflokkur Baggalútíu var stofnaður fyrir aðeins fáeinum dögum síðan, og hefur þegar markað sér sess í samfélagi þessu. Löngu var orðið tímabært að stofna einn flokk er hugar að hagsmunum pöpulsins. Flokk sem hefur hagsmuni heildarinnar að leiðarljósi. Flokk sem stefnir að þeirri byltingu sem nauðsynleg er til að allir Bagglýtingar njóti þeirra gæða sem okkar gjöfula land hefur upp á að bjóða.
Hins vegar hefur gætt, aðallega meðal svokallaðs 'aðals' hér nokkurrar mótspyrnu gegn málstaði okkar. Þetta er skiljanlegt. Menn eru alltaf smeykir við breytingar, sérstaklega þegar þær þýða að þeir missa úrkynjuð og óþörf lífsgæði þau er þeir eru orðnir vanir.
Sökum þessa hryggir það mig að tilkynna að við í flokknum höfum tekið þá örlagaríku ákvörðun að hefja þróun gereyðingarvopns, til þess að bæta samningsstöðu okkar gagnvart hinum gjörspillta aðli. Þetta vopn er eitt það illasta sem nokkur maður hefur upphugsað, en þegar byltingin er annars vegar þá helgar tilgangurinn meðalið.
Úr tilraunastofum Flokks vors hefur risið upp stafrænn hermaður, þess megnugur að draga hverslags umræður Baggalútíu niður í svað misþroska ungmenna með því að endurtaka rituð orð annarra miðla, og menga þannig hugsunargang þeirra sem að kjósa að mótmæla réttlátu kalli Flokksins til valda.
Ímyndið ykkur Gestapóa, sem er einungis heilalaust ílát fyrir slíkan hermann. Hann yrði þess megnugur að dæla inn á Gestapó þúsundum innleggja daglega, sem öll innihéldu orðréttar tilvitnanir í umræður á Sjöunda spjallsvæði heljar, hxxxx.is! Getið þið það? Þetta er illt, já, og illskiljanlegt að nokkrum heilvita manni skuli láta sér detta í hug að búa slíkan ófögnuð til, en slíkur er aðdráttarkraftur byltingarinnar!
Ég segi því í nafni flokksins: Færið Kommúnistaflokki Baggalútíu aukin völd, ellegar munum við öll farast í allsherjarbáli lágkúru og ömurleika!
Lifi Byltingin!
Í dag er merkilegur dagur, sjaldan hefur hin rauða birta verið jafn ógnvænleg, þess þá heldur framtíð Flokksins bjartari. Skál félagar!
Skál fyrir flokknum! Megi hinn stafræni hermaður færa okkur eilífa hamingju.
Safnast aldrei rigningarvatn í nefið á ykkur? Ég skil ekki af hverju þetta gerist alltaf hjá mér.
Riddarinn sem var sendur til baka frá árinu 4007, upplýsir hér með, að hér er ekki rétt með farið, engin notkun á slíkum stafrænum hermanni á sér stað fyrir árið 2052, og vinsamlegast athugið að þá er enginn kommúnisti skráður eða óskráður til á jörðinni. Vinsamlegast athugið að öllum lottonúmerum,happadrættisnúmerum og vinningshöfum hefur verið eytt úr gagnasagni Riddarans.
RIddarinn verður að árétta að árið 2005 var gerð tilraun til að láta sem þessi stafræni hermaður væri til en hann reyndist vera tilbúningur stjórnmálaafla á Baggalútíu á þeim tíma.
Heiðglyrnir gefur frá sér hljóð eins kemur þegar ýtt er á redial á stafrænum síma nema að tónmerkin eru 73.- og það eina sem þau gera er að segja gerfi Stafræna hermanninum að Heiðglyrnir er stikkfrír, og að halda áfram eins og ekkert hafi í skorist, því að ekkert á eftir að skaða þennan málstað meira en þetta útspil.
Reiknaðu ekki með neinum andvökunóttum hjá okkur í Ríkisstjórninni vegna þessa digitals dáta ykkar. Enda skilst mér að hann sé splæstur saman úr fjórum digital Ísland afruglurum og allir vita nú hvernig þeir virka!
,,...ellegar munum við öll farast í allsherjarbáli lágkúru og ömurleika!"
Mér sýnist sem það sé þegar of seint að koma í veg fyrir.
Afturhaldskommatittur, færðu ekki nógu mikla athygli á Baggalútíu, þar sem þetta á heima?