Nú í tilefni sk. Ljósanætur í Reykjanesbæ hafa ýmsir styrktaraðilar gert sérstakar auglýsingar í tilefni hátíðarinnar. Meðal þessara fyrirtækja er tryggingafélagið Sjóvá og hafa þeir látið gera auglýsingu í bundnu máli er hljóðar svo:
Um ljósanótt þau lifna við
og leita inn í bæinn
að skoða skrítna mannfólkið
í skjólinu við sæinn.
Mér þætti fróðlegt að vita hvort þeir hjá Sjóvá hafa áttað sig á þessu. Ég geri ráð fyrir að þeir hafi greitt einhverri auglýsingastofunni háa fjárhæð fyrir þennan leirburð án þess að átta sig á því að þeir hafa verið teknir laglega í svarth*l*ð.
Látum vera allar fíflaganginn sem tíðkast í auglýsingaiðnaðinum en gefi menn sig útfyrir að geta orkt á hefðbundinn hátt er betra gera það rétt eða sleppa því hreinlega.
Ég vil geta þess ég er ekkert sérstaklega að bera hag Sjóvár fyrir brjósti enda voru viðskipti okkar bræðra við það félag ekki skemmtileg þegar jeppabifreiðin, sem við keyptum af Ragnari á Brimslæk hér um árið, dældaðist í smávægilegum árekstri.
Að lokum:Svona bæjarhátíðir eru skemmtileg og virðingarverð tilraun til þess að brjóta upp gráan hversdagsleikann. Samt jafnast engin slík á við áramótamótið á Ýsufirði. Þar er þreytt sund og glíma og snædd hnausþykk ketsúpa ásamt öðru góðgæti og allir, sem vettlingi gera valdið, fá að vera með.
Ef eldraun þú andspænis stendur,
þú alltaf mátt stóla á Toro.
Lát ei hug þér fallast né hendur,
nei hikaðu ekki við Toro.
Toro er merki sem þú getur treyst,
Toro getur þinn vanda leyst.
Þetta er annað dæmi um leirburð sem hefur ábyggilega kostað skildinginn á sínum tíma, þó gamalt sé orðið...
Nú er búið að birta vísuna og þá er orðið of seint að iðrast. Af þessu geta þeir sjóválegu menn þar lært að maður tryggir ekki eftir á.
Varðandi áramótamótið. Er þetta ekki örugglega mótamót ára - og eru þetta ekki ári hressir árar sem það sækja? Og þeir sem vettlingi geta valið segir þú - áttu þá ekki við þá sem geta etið þá? Hráblautir sjóvettlingar hljóta að vera ljúffengir að narta í með hnausþykkri ketsúpunni.
Mikið vorum við samtaka í þessu Hlebbi minn. Ja, hugir stórir huxa eins...
[Setur sig í Pollýönnustellingar]
Þetta er nú ekkert svo slæmt - bara of langt á milli stuðuls og höfuðstafs á einum stað.
Betra væri:
Um ljósanótt þau lifna við
og leita inn í bæinn
að mæna'á skrítna mannfólkið
í moldroki við sæinn.
Hver eru þessi þau sem ljóðmælandi yrkir um?
Ljósanóttin laðar að
langar gestaraðir
Þeir skammlaust allir iðka það
að una sér við glaðir!
Með smá varíant er hægt að breyta þessu í auglýsingu fyrir frjósemishátið.