útafhverju vill fólk ekki sætta sig við það að Elvis er látin. þetta er soldið skrítið eða það finst mér.
Ristabrauðsvélin mín, þetta er flókin og góð spurning, en tilfellið er að svona sögusagnir hafa gengið um marga fræga einstaklinga. Manninum er eiginlegt og vill trúa að ekkert deyi heldur lifi áfram í einhverri mynd, í þessum heimi eða öðrum. Hvort hér er um að ræða útfærslu eða yfirfærslu á þessari trú skal ekki dæmt um hér. En þetta er algengara en svo að hægt sé að láta fram hjá sér fara.
Elli prelli eldist vel
ekki er að spyrja
ódýrt keypti ódýrt sel
óð vil honum kyrja