þrælspennandi
ja, mart skemmtilegt hefur hent mig.
Séstaklega man ég eftir því þegar ég sendi fyrirspurn á "vísindavef" þar sem hálærðustu menn vefsins komu saman til að leysa vandræði þau er mannskepnan átti til að koma sér í.
Allt varð þetta því að kenna að mér fannst einsog ég hafði heyrt það einhverstaðar að ekki þyrti að láta vatnið fjóta yfir kartöflurnar þegar ætti að sjóða þær og með því mætti bæði spara tíma og orku.
Eitthvað var ég búinn að þrefa um þetta við spússu mína, að lokum sagði ég henni að nú fengi ég alla heimsins hæðsu hálærðustu menn til að koma með óhyggjandi sannanir fyrir soðfræði kateflna.
Spurning mín var afar einföld og hljómaði svona :
" Þegar kartefla skal soðin er nóg að vatnsmagnið sé, uþb. 1/3 af körtunni 2/3 eða skal það fljóta yfir hana ? "
það leið og beið, ég var löngu búinn að gleyma fyrirspurninni, svo þremur vikum seinna fékk ég svar sem var svona:
" geturðu verið aðeins nákvæmari"
-
Þá skelti ég uppúr.