— GESTAPÓ —
Davey
Nýgræðingur með  ritstíflu.
Dagbók - 2/11/03
Ekki svo saklausa litla hvalbátabryggjan okkar í Reykjavík

Á laugardagskvöldið voru ég og góður félagi minn í bílnum hans að aka um saklausa litla bæinn okkar og höfðum fátt á okkar könnu þannig að við ákváðum að stoppa við Hvalbátabryggjuna við höfnina til að iðka tóbaksreykingar.
Við keyrðum inn götuna sem liggur að bryggjunni og fórum hægra megin við geymsluhúsið sem vegurinn liggur hringinn í kringum. Við tókum U-beyju í kringum húsið og ætluðum að stöðva bílinn við endann á húsinu, þar sem var gott skjól gegn vindi. Þegar við fórum framhjá endanum á húsinu þá sá ég að 3 bílar voru lagðir við húsendann og að ein geymslan var opin og sá ég glitta í sjónvarp þar inni sem var í gangi með skerminn uppfullan af húðlit á hreyfingu.
Ég segi honum vini mínum að ég hafi séð kveikt á sjónvarpi inni í einni geymslunni og hann ætlar ekki að trúa mér þannig að hann skellir í bakkgír til að líta á þetta. Þegar bíllinn er kominn að opnu geymslunni þá sér hann vinur minn að þar var ekkert minna en argasta klám í sjónvarpinu og að maður á miðjum aldri á hlýrabol og boxer nærbuxum einum fatta rauk upp, úr myrkri geymslunni að dyrunum, leit á hann og skellti hurðinni.
Við keyrðum eins og 10 metra áfram, stjarfir af undrun, lögðum bílnum, reyktum okkar tóbak og hypjuðum okkur.

Kenning okkar um þessa ógeðfelldu geymslu segir að þar getur ekki hafa verið um neitt annað að ræða en samkynhneigða menn að gera þá hluti sem samkynhneigðir menn gera, því engin kona myndi nokkurntíman húka í slíkri ógeðfelldri, skítugri og drungalegri geymslu að horfa á klám og iðka kynlíf með 2 öðrum manneskjum.

Svona er Reykjavík að verða...hommar í hverri geymslu, ástandsbörn á hverju strái og fólk með vitlausar stjórnmálaskoðanir að flagga þeim með “málfrelsi„ sér til afsökunar.

   (1 af 1)  
2/11/03 04:00

Amon

Mikið vildi ég að eitthvað ,,húðlitað væri á hreyfingu" í mínu rúmi núna. Ekki væri slæmt ef um væri að ræða nakið kvendýr.

2/11/03 04:00

Davey

Það er bara koddinn fyrir þig í kvöld!

2/11/03 04:00

SlipknotFan13

Mér hryllir við tilhugsuninni. En ætli þetta hafi ekki bara verið sjómenn nýkomnir til hafnar, fyrir löngu búnir að týna allri náttúru til kvenna af óralöngum siglingum sínum umvafðir öngvu nema öðrum karlmönnum? Þeim er vorkunn greyjunum.

2/11/03 04:01

Þarfagreinir

Mér finnst þetta allt saman fremur ósmekklegt. Ósmekklegt segi ég!

2/11/03 05:02

Independent

Ykkur hefur ekki dottið í hug að banka uppá og horfa á einn klammara með manninum! Örugglega fínasti karl!

Davey:
  • Fæðing hér: 25/11/04 15:20
  • Síðast á ferli: 3/5/05 23:53
  • Innlegg: 0