Lítið er vitað um ævi Fjaðrakústs áður en hann flögraði yfir landamæri Baggalútíu. Þó leikur grunur á að fuglshamurinn sé einungis snjall dulbúningur, enda eru talandi fuglar ekki á hverju strái. Það gefur reyndar auga leið, strá eru almennt ekki nógu sterkbyggð til að halda uppi fuglum, hvað þá talandi fuglum...