Ellegar kunni eg geir að vera.
Ég hefi séð Kolfinn Kvaran. Hann lítur ekkert út eins og myndin sem hann er með. Ég ætla hér með að lýsa yfir vonbrigðum mínum á þeirri staðreynd og heimta að hann geri eitthvað í þessu.
Hvernig getur svona lagað bara átt sér stað, er fólk hér að senda inn myndir af einhverjum öðrum, villa á sér heimildum, varðar það ekki hreinlega við lög.
Ja maður bara spyr.
Ætli hann hafi ekki frekar brugðið sér í dulargervi þegar hann tók eftir að þú varst að fylgjast með honum.
Diotallevi, Jú, það hélt ég fyrst, þannig að ég togaði lítið eitt í yfirvaraskegg hans til að fullvissa mig um einmitt þetta, en þá tók ég eftir því að skeggið vantaði alveg.