Ansi verður smart City Coupe eitthvað sportlegur svona teygður. Eins gott fyrir hann að einhver sem kann ekki að keyra í hálku var búinn að velta honum á bossann, því þótt fagur sé má hann ekki við því að vera teygður meira á hinn veginn.
Mikið ertu skarpur 'Greinir... Mér datt ekki einu sinni í hug að þarna væri samhengi að finna.
Enn ein sönnun þess að tillaga vor um að banna snjó á vegum og götum Baggalútíu er eigi það rugl er sumir hafa haldið fram. Hún er þvert á móti þjóðarnauðsyn eins og vér munum gera nánari grein fyrir annarsstaðar innan tíðar.