— GESTAPÓ —
Sauða-Mangi
Nýgræðingur með  ritstíflu.
Pistlingur - 2/12/04
Reykingapæling

Ég var svona að velta einu fyrir mér.

Nú eru menn að rífast og rökræða um reykingabann á veitingahúsum (eins og svo oft áður).
Þeir sem ekki reykja vilja banna og þeir sem reykja vilja halda áfram að reykja ofan í ákavítið og nautasteikina.
Þeir sem vilja reykja ofan í matinn sinn (fastann eða fljótandi) halda því fram að það séu sjálfsögð mannréttindi að reykja á almannafæri og þeir sem hafi eitthvað á móti því geti bara farið annað. Og þá fór ég að pæla í einu.
Ef ég tæki nú upp á því að klæða mig úr hverri spjör á veitingahúsi, og héldi svo bara áfram að spjalla og borða berstrípaður, er næsta víst að ég yrði beðinn um að yfirgefa samkomuna hið snarasta. Þessi sjónmengun væri óþægileg fyrir aðra viðskiptavini og einhverjir gætu jafnvel misst matarlystina (karlmennirnir sérstaklega). Samt væri ég ekki að eitra fyrir neinum eða væri með skrílslæti.
Þetta var nú bara smá pæling í tilefni af food and fun.

   (1 af 2)  
2/12/04 19:01

Steinríkur

Ég er nú ekki löglærður en það má víst flokka þetta sem óspektir á almannafæri og/eða að særa blygðunarkennd annarra gesta - sem hvoru tveggja er bannað.

Svo má ekki gleyma því að eigandi veitingahússins er alltaf í fullum rétti til að fleygja gestum öfugum út eftir eigin geðþótta.

2/12/04 19:01

Smábaggi

Er það? Ég hélt að enginn veitingahúsaeigandi á Íslandi geti ákveðið að henda út m.a. öllum Japönum með sítt hár ef að honum sýndist svo.

2/12/04 19:02

Ittu

Pujoortarpellaarputiit!

2/12/04 19:02

Steinríkur

Ég held að þeim sé frjálst að setja reglur um nánast hvað sem er á meðan það er ekki brot á stjórnarskrá, og henda fólki út sem ekki fylgir þeim.

Þá má náttúrulega ekki henda fólki út (mismuna því) eftir kynþætti, trúarskoðunum og svoleiðis, en í góðu lagi að krefjast þess að fólk keðjureyki og klæðist grænyrjóttu pilsi til að fá aðgang.
Áður var t.d. einn skemmtistaður í miðbænum sem bannaði bindi - og dyraverðir voru vopnaðir skærum til að klippa á svoleiðis áður en gestum var hleypt inn.

En ég er ekki löglærður og veit svo sem ekki neitt yfirleitt.

2/12/04 19:02

Smábaggi

Athyglisvert, takk fyrir.

2/12/04 20:00

Barbapabbi

Ef leyft verður að banna reykingar á skemmtistöðum sem eru í einnkaeign verður þá ekki næsta skref að banna fólki að reykja heima hjá sér þar sem reykingarnar geta bitnað á fjölskyldumeðlimum og þeim sem dettur í hug að kíkja í heimsókn. - Eignarrétturinn er heilagur, til helvítis með þessar hugmyndir segi ég,.

2/12/04 20:01

Finngálkn

Nei þú ferð til helvítis þar sem rýkur úr öllu...

4/12/04 20:02

Bismark XI

Það er bara kúl að reykja og stjórnmála mennirnir voru aldrei hluti af kúl fólkinu í skóla það er þess vegna sem að þeir vilja banna þetta.

6/12/04 04:00

Bölverkur

Þetta var voða vitlaust. Þú yrðir þér til skammar fyrst og fremst hjá kvenfólkinu með því að berhátta þig.
Hins vegar mættir þú drepa á helvítis bíldruslunni þinni þegar ég hjóla fram hjá þér.

Sauða-Mangi:
  • Fæðing hér: 10/11/04 14:35
  • Síðast á ferli: 15/8/05 13:24
  • Innlegg: 0