Það verður að segjast eins og er að Snjallræðasögurnar sem komu út fyrir þessi jól (Týnda prinsessan, Kormákur og kattþeytillinn, Snorkóforkur) eru þær frábærustu barnabækur sem ég hef á ævinni séð.
Frumlegar - skemmtilegar - fyndnar - litríkar... ég gæti haldið endalaust áfram að hella úr skálum lýsingarorða minna en læt hér staðar numið. Þið ættuð að vera búin að ná því núna hvað mér finnst þessar bækur æðislegar.
Hins vegar langar mig að benda á einn galla (já, einn einasta einn galla) á Snjallræðasögunum: Þær eru ekki nógu margar. Fleiri Snjallræðasögur!
Eruð þér þroskaheft fröken? - Veistu ekki að barnabækur eru fyrir börn en ekki fullorðna? - Nei smá spaug. Hver skrifar þessar snjallræðasögur?
Hvar hefur þú verið Finngálkn (kíktu í Jólatunnuna)... góður dómur Hestia...
Barnabækur? Ég hef staðið í þeirri trú að þetta séu exístensíalískar dystópíufabúlur með vott af póstmódernískum neósósíalrealisma.
Já kæri konungur. Ég hef líka prófað að lesa sjónvarpsdagskrána undir áhrifum ópíums - sem var áhugavert - og krufði hana svo niður ó isma og tilheyrandi...
Velkomin Hestia. Það er víst til siðs hjerna að taka nýgræðingum vel, svona til að byrja með í það minnsta.
Hmm er hún enn nýgræðingur? Þá býð ég hana hjartanlega velkomna. Vertu hjartanlega velkomin ungfrú.
Hvað ef hún er bara að droppa við til að auglýsa Snjallræðasögurnar sínar fyrir jólin?
Þakka ykkur fyrir hlý orð. En Nafni, ég er ekki höfundur bókanna. Fegin vildi ég vera það, en svo er ekki. Prófaðu að leita eftir "snjallræðasaga" á gegnir.is. Þar er engin Hestia.