— GESTAPÓ —
Von Strandir
Fastagestur.
Dagbók - 2/11/03
Jólaföndur

Nú líður að jólum og margir byrjaðir að föndra. Jólaföndur hófst hjá mér um daginn.

Þannig er mál með vexti að eldri sonur minn fékk í byrjun desember playmodagatal. Af því hefur hann mjög gaman, fær að opna þar til gerðan pakka á hverjum degi sem inniheldur einhvern smáhlut. Hann heldur vel utan um þetta allt saman, bæði pakkana og innihaldið.

Yngri syni mínum, sem ekki hefur vit á þessum smáhlutum ennþá, finnst þetta allt saman mjög spennandi og gerir sitt ýtrasta til þess að koma höndum yfir þetta dót sem sá eldri geymir eins og sjáaldur augna sinna.

Um daginn, þegar allir litu undan, tókst honum það. Hann náði dósinni sem sá eldri geymir gersemarnar í og kom sér fyrir á góðum stað og hófst handa við að skoða innihaldið. Honum fannst litlu pappakassarnir mest spennandi.

Mitt jólaföndur fólst í því að líma saman alla litlu pakkana aftur. Það var niðurstaða heilmikilla friðarumleitanna og afvopnunnarsamninga.

   (4 af 10)  
2/11/03 20:01

bauv

Hehe snilld,samt erfitt að lenda í þessu.

2/11/03 20:01

Heiðglyrnir

Æ, þetta hefur ekki litið vel út um stund, en pabbi reddar öllu, skemmtilegur pistlingur.

Von Strandir:
  • Fæðing hér: 20/10/04 14:19
  • Síðast á ferli: 18/2/20 16:56
  • Innlegg: 430