Svona er leiðaráætlunin fyrir árshátíðina. ATHUGIÐ ! HÚN GETUR BREYST, STÖÐVAR FALLIÐ NIÐUR VEGNA FORFALLA EÐA ANNARA ÁSTÆÐNA !! Þeir Gestapóar sem eru skráðir fyrir hverri stöð eru þeir [b]einu[/b] sem eiga von á fari frá viðkomandi stað. Dæmi: Tumi mætir í partý hjá Þarfa --- ERGO, ekki verður ekið inn í Kópavog (nema Tumi vilji fara heim eftir Árshátiðina.
19:30 BROTTFÖR Þarfastaðir við Hringbraut
Andþór
Bleiki Ostaskerinn
Dula
Dularfulli limurinn
Furðuvera
Garbo
Goggurinn
Gunther
Herbjörn Hafralóns
Hóras
hvurslags
Línbergur
Pó
Rauðbjörn
+ viðhengi
Skoffínið
Tigra
Tina St. Sebastian
Upprifinn
Villimey
Vladimir Fuckov
Þarfagreinir
Ekið Hringbraut, Snorrabraut, Flókagata og Rauðarárstígur.
19:37 Hlemmur við Kaupþing banka:
Regína
dordingull
Ekið um Laugaveg, Nóatún, Borgartún, Sundlaugaveg
19:40 Heimskautstaðir við Sundlaugaveg
Heimskautafroskurinn
+ viðhengi
Ekið um Reykjaveg, Suðurlandsbraut, Kringlumýrarbraut, Háaleitisbraut, Skipholt, Háteigsveg.
19:43 Við Háteigsskóla
Grýta
Mikki Mús
Ekið um Lönguhlíð, Bústaðaveg, Kringlumýrarbraut, Hafnarfjarðarveg, Hamraborg
19:49 Biðskýli Strætó við Bókasafnið
Tumi Tígur
Ekið um Hafnarfjarðarveg, Kringlumýrarbraut, Bústaðaveg, Grensásveg, Sogaveg
19:53 Laufstaðir við Sogaveg
Litla Laufblaðið
...og þaðan beinustu leið á Áslák.
Sama leið (í öfugri röð) verður ekin til baka með einni undantekningu. Stoppað verður í Lækjargötu fyrir þá sem vilja sækja almennar síðnætursamkundur eftir árshátíðina.
Vinsamlega tilkynnið forföll bæði til mín og Árshátíðarnefndar.
Sómastaðir hefðu örugglega verið á leiðarplaninu ef a) einhver hefði viljað láta sækja sig þangað og b) ekki væri um óhóflegan útúrdúr að ræða.
Glæsilegt.Ég treysti því að B,Stálminni Ewing muni hvar Laufstaðir eru ..nú annars hringirðu bara [Ljóm]
Það er gott að þið vitið hvar ég verð. Ég var nefnilega ekki alveg búin að ákveða það sjálf.
...og hvar er Swakopmund?
Annars segi ég sem gamall strætóbílstjóri í Reykjavík: Þú munt aldrei standast þessa tímaáætlun...
Jóki, ég verð á tvöfaldri túrbórútu og læt ekkert stoppa mig í að halda dauðahaldi í tímaplanið. Ekki nema von að strætó gangi svona [Glottir eins og gerpi]
Við skellum bara kóbalti í tankinn og þá verða öll ljós græn og allar stelpur berar.
Jæja, þú segir það. Það er ekki spurning um að keyra eins og svín, heldur að hleypa farþegunum inn...
Réttast væri líklegast að hafa peningahrúgu í rútnni svo fólk drífi sig inn...
Jújú, þessi tímaáætlun ætti að ganga, sleppum bara Kópavoginum og þá reddast þetta.
Fyrst að ég er sá eini sem hefði tekið rútuna þar þá mæti ég til Þarfa.
Úr því að rútuplanið er til umræðu þá finnst oss farið helst til lítið í átt að miðju stór-Garðabæjarsvæðisins á leið til baka í nótt [Starir þegjandi út í loftið].
Auk þess væri gaman ef komið væri við á Antarktíku.
Ég er líka svekt yfir að hafa ekki komist og ég hlakkaði sérstaklega til, að hitta maffaspilaranna.
Já, það hefði verið gaman að efna til deilna við yður um hlutverk teninga í 'endatafli' mafíuleikja [Glottir eins og fífl].
Það segir þú satt Vladimir. <Ljómar upp>
Eflaust getum við svo fundið okkur fleiri þrætuepli, þegar teningamálið verður til lykta leitt.
Bull er þetta. Rútuplanið stóðst með sóma enda er Billi ekki á rútusætalistanum.
Rútuplanið stóðst fullkomlega því farið var nálægt miðju stór-Garðabæjarsvæðisins í bakaleiðinni [Ljómar upp].
Annars sjáum vjer ástæðu til að þakka B. Ewing fyrir hans hlut í árshátíðinni, á sama hátt og Villimey og Þarfagreinir hafa fengið hrós í öðru fjelagsriti. Skál !