Þetta eru nokkrir punktar um þær bækur sem ég geri fastlega ráð fyrir að muni berjast um hylli landsmanna næstu jól, jafnvel eitthvað fyrr sumar hverjar....
Fagra hvað? (í sjó og á landi) - ljóðabók eftir Össur Skarphéðinsson
Skilgreining á þjóð - kennskubók í fjórum hlutum eftir Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur
Hvernig taka skal ábyrgð í þrem einföldum skrefum - fræðsluhefti með myndum eftir Björgvin Guðna Sigurðsson
Orðið er máttugra en bændaglíman - Ræðusafn Steingríms Jóhanns Sigfússonar. 1. bindi af 286.
Setið á strák sínum - Barnabók eftir Árna Þór Sigurðsson
Það er litið upp til mín - eftir Katrínu Jakobsdóttur
Álið er málið (því ausan sem kálið er sopið úr er úr áli) - eftir Valgerði Sverrisdóttur
Nýtt blóð (útþynnt með því gamla en hvað með það) - eftir Birki Jón Jónsson
Skipulag hugsjóna - eftir Björg Siv Juhlin Friðleifsdóttur
Á sjó - eftir Grétar Mar Jónsson
Stolt siglir fleyið mitt - eftir Guðjón Arnar Kristjánsson
Gefðu að hann nái til lands - eftir Karl Valgarð Mattíasson
Þetta er garanteraður metsölulisti.
Sennliega ríkir svo ofboðsleg eftirvænting eftir þessum titlum, að mér finnst að höfundarnir séu þegar löngu byrjaðir að lesa uppúr þeim í helztu fjölmiðlum...
Þetta verður spennandi lestrarefni [Ljómar upp].
En er virkilega ekki von á Við gerum aldrei mistök eftir þingflokk Sjálfstæðisflokksins og svo Þegar Gordon stal góðærinu eftir Árna Mathiesen fyrir næstu jól ?
Þetta eru allt afar áhugaverðar bækur. Á von á því að þær verði áberandi á metsölulistum Bókaverslunar ríkisins í haust og einhverjar þeirra munum án efa verða tilnefndar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna.
Má síðan ekki búast við bókinni Nokkrir góðir dagar án Jóhönnu eftir D. Oddsson?
Samkvæmt óstaðfestum heimildum er svo líka sje von á Elskan mín, þetta er misskilningur eftir Árna Mathiesen.
Já og að sjálfsögðu Síðasti maðurinn slekkur á eftir sér eftir þingflokk Frjálslynda flokksins
Jólabækurar verða stórkostlegar á þessu ári. Þér megið bóka það. (Glottir eins og væri að lumma á einhverju)
Svo er náttúrulega einblöðungurinn "aðgerðir Sjálfstæðisflokks í innri endurreisn". Kostar kr 6.799 því þeir þurfa nú að nurla inn fyrir styrkjunum sem þeir skiluðu til baka.