Skemmtilega útfærð síða þar sem giska á hvaðan myndin sé tekin
Á síðunni http://www.flitta.com/ er lítill leikur þar sem viðkomandi á að giska á hvaðan myndin er tekin. Skemmtilega útfært og einfalt í framkvæmd.
Helsti vankannturinn er örlítil forritunarvilla í gegnum vafrann minn en það stendur til bóta að mér skilst.
Ég skora á alla að kíkja við.
Interessant, en þessi er miklu skemmtilegri:
http://fontgame.ilovetypography.com/
Afbragð. Ég var með 60% rétt þegar ég hætti. Stundum voru þetta nú frekar ósannagjarnar myndir. Eða altso, valmöguleikarnir voru ósanngjarnir. Ein myndin var af ávöxtum röðuðum á borð og í boði voru 2 möguleikar frá suður ameríku. Ómögulegt að vita hvort væri rétt.
Ég fékk nú frekar snúnar myndir...t.d eina af kálhaus sem að gæti jafnt verið í Hveragerði og Bratislava....
Það virkar eitthvað ekki í þessum leik. Það var sama hvort ég gat rétt eða ekki, það reiknaðist allt sem rangt.
Ágætur leikur eflaust, þó hann sé ekki að mínu skapi. Vantar oft einhver einkenni til að leita eftir. Barnsandlit eða hnífapör eru slök vísbendng.
Þessi leikiur er nýbyrjaður og er í þróun. Svo verða giskin rannsökuð eða eitthvað, það er útskýrt í About Flitta hlutanum.
Svo má hjálpa sér heilmikið ef maður hægrismellir á flickr-myndina, afritar flickrslóðina í annan glugga, sneiðir "_m" af slóðinnii (til að fá fulla stærð) og skoðar myndina betur.
Nermal, hvort er "líklegra" að þú getir tekið mynd af kálhaus í Hveragerði eða Bratislava ?
Krossa og Huxi, endilega segið mér hvaða vafra þið notið og hvaða stýrikerfi, ég get komið þessu vandamáli til skila við síðusmiðinn.
Barnsandlit og hnífapör eru alveg nógu góðar vísbendingar albin...
Var barnið hvítt, þeldökkt, asíst, indverkst eða eskimói ? Það eru varla margir eskimóar í Asíu t.d.
Svo eru hnífapör líka vísbending um að myndatökumaðuurinn sé hvorki í Asíu né meginhluta Afríku....
Svona til að útskýrra hvernig ég skoða leikinn,
Ég fékk rétt í þessu mynd af kremhvítum ís í bambusskál með röri.
Ísinn er afar vatnskenndur (glansar mikið), Rörið er afar vestrænt
þannig að margt bendir til að ísinn hafi verið í Ameríku þegar myndin vvar tekin. Aftur á móti þá er hann í bambusskál en ekki gleríláti og það bendir sterklega til Asíu.... Þetta er á útikaffihúsi og stólarnir í bakgrunni (og úr fókus) virðast vera úr steypujárni og með laufblaðamunstri. Þannig að ég ætla að ýta á USA [ýtir á USA]
Valmöguleikarnir eru:
USA
Kína
Indland
Tékkland
Suður Kórea
Það eru ALLIR litir t.d. í USA
En, það er ekki að breyta neinu. Ég ætla ekki að skemma ánægju annara þó mér falli ekki þessi leiku.
Þeir verða að laga þetta svo það komi ekki sama landið tvisvar við sömu myndina. Nú er ég td að skoða illa upplýsta brú, myndin er tekin um hánótt og löndin sem eru í boði eru:
Saudi Arabia
Lebanon
Mexico
Saudi Arabia
Switzerland
Þá hef ég svarað 300 sinnum og er með 52% rétt. Það er ekkert svo lélegt held ég.