Hamingjusaga ungrar stúlku sem fékk 4 tonna gám og tengivagn ofan á bakið á sér án þess að slasast alvarlega eða jafnvel deyja vakti nokkrar spurningar í dag.
Eftir að hafa heyrt að gámur hafi lent ofan á bíl í Borgarfirði þá kemur fyrst upp í hugan, hver dó? Sem betur fer og sé það Guðs mildi að svo reyndist alls ekki vera.
Daginn eftir slysið kemur þessi sama stúlka og segir sína sögu í Kastljósi, Frásögn hennar var athyglisverð að því leyti að svo virðist sem Neyðarlínan og/eða Lögreglan í Borgarnesi hafi gefið henni kolrangar leiðbeiningar um hvað hún ætti að gera. Að hennar sögn þá var henni sagt að hringja annaðhvort í dráttarbíl eða láta einhvern sækja sig. Þar sem hún ætti ekki neinn pening fyrir dráttarbíl þá ættu mamma eða pabbi að leggja af stað frá Reykjavík og upp í Borgarfjörðinn og leita að henni.
Símtalinu við Lögregluna lauk að vísu með því að miskunnsamur samborgari baust til að draga bíl stúlkunnar upp á veg en því miður tókst það ekki.
Hvaða vitglóra er í því að senda aðstandendur 50-60 km leið í snarvitlausu verði að leita uppi bíl utan vegar þar sem hvorugur aðillinn er staðkunnugur?
Ertu að segja mér að þeir hafi ekki nennt að fara þetta eftir henni? Hvað er eiginlega að fólki!
Sá og heyrði þessa stúlku í Kastljós þættinum. Af hennar frásögn að dæma er um enn eitt klúðrið hjá neyðarlínunni að ræða og það er ekki þeim að þakka að ekki varð dauðaslys í þetta skipti.
Nr. 1) Stelpan fékk misvísandi leiðbeiningar hjá Neyðarlínunni og lögreglan í Borgarnesi hafði örugglega miklu meira en nóg að gera við að bjarga fólki og hefur litið svo á að þarna væri enn eitt fórnarlamb veðurs sem væri bara í landfræðilegri biðröð, þ.e.a.s þeir væru að nálgast en væru ekki komnir.
nr. 2) Hvaða fáviti ákvað að skella aumingjans stelpunni í viðtal í Kastljósinu innan við sólarhring frá því að hún með einni réttri hreyfingu forðaði sér frá dauða? Hún hafði ekki fengið áfallahjálp og var augsýnilega enn í losti sem og hún sagði sjálf. Stelpugreyið var í mjög miklu ójafnvægi og var við það að missa sig á kafla. Eru ekki til einhverjar reglur um það að fólk sem lent hefur í hrakningu þurfi að fá áfallahjálp áður en talað er við fjölmiðla? Stelpan hefur ekki verið með réttu ráði þegar hún samþykkti að koma í þáttinn. En hún hefur kannski áttað sig í viðtalinu og þess vegna verið alveg að missa sig.
Nr. 1) Það hefur enn ekki komið fram herjir voru á ferð um svæðið að kanna aðstæður og /eða bjarga einhverjum. Hvað landfæðilega biðröð varðar þá var hún að því er virðist eini bíllinn sem fór útaf á Borgafjarðarsvæðinu umrætt kvöld.
Nr. 2) Ósmekklegt eða ekki, hún samþykkti að koma í viðtal og hlýtur þá að hafa verið viss um að komast klakklaust í gegnum það. Fólk sem kemur í sjónvarp stífnar oft og stessast upp í viðtölum, mörg dæmi eru til um það. Annars skal ég vera sammála þér með það að boða hana svona snemma í viðtal er kannski ekki alveg topp klassa fjölmiðlun. Slíkt finnst manni stundum geta bara gerst á sneplum eins og DV eða álíka.
Það er slegist um svona uppákomur milli stöðvanna og ritstjóri Kastljóss ber ábyrgð á þessu viðtali, ekki stelpan hún vissi varla hvort hún var að koma eða fara.
Mér fannst stúlkan koma einkar vel fyrir. Hún var afslöppuð, einlæg og blátt áfram. Hins vegar var máske ósmekklegt að kalla hana svona fljótt til viðtals. En það var ekkert út á hennar þátt að setja, hún stóð sig vel.
Og mikið lán var að hún skyldi sleppa ósködduð frá þessu. Megi henni ganga allt í haginn.
Ég var nú að vinna hjá securitas í einnhvern tíma hérna áður og þurfti að umgangast þetta lið þarna hjá neiðarlínunni. Við skulum bara segja að þetta var ekkert gáfaðasta fólk sem ég hef hitt
Enda skilst mér (hef reyndar ekki staðfestingu á því) að launin séu alls ekkert til þess að hrópa húrra yfir.