Þetta félagsrit er afskaplega jákvætt og uppbyggilegt.
Hér mega bara þeir skrifa sem eru í góðu skapi og vilja deila því með öðrum.
Hér mega bara þeir skrifa sem eru hafa eitthvað heilbrigt, jákvætt, og uppbyggilegt fram að færa.
Hér mega bara þeir skrifa sem vilja lifa í sátt og samlyndi við aðra á Gestapó.
Hér eru öll dýrin í skóginum vinir.
Það var allt og sumt ...
Ahh... hér er gott að vera... þótt ótrúlegt sé, þá er ég í ljómandi góðu skapi þrátt fyrir stuðið sem er búið að vera í dag... salútíó...
Þó það það sje e.t.v. undarlegt erum vjer líka í hinu besta skapi. Skál !
Það er einstaklega uppbyggilegt og jákvætt, en ég veit ekki hvort það er heilbrigt.
Æi, þetta sleppur. Flassavei.
Hér er frábært að vera og æðislega gaman. Ugla á á ekki lítinn heiður þar í.
Þarfi er líka ansi huggulegur....
Já, viðtökurnar eru framar öllum vonum. Mér líst vel á þetta.
[Ljómar upp eins og 90 W halógenpera]
Verður kannski flassað á árshátíðinni líka ? [Hrökklast afturábak og hrasar við en ljómar jafnframt upp eins og gerð hafi verið eliptonárás í nágrenninu]
[Hoppar til að forðast tígrisdýrið, klessir á vegg]
Þetta þykir mér heldur þröngt félagsrit.
Ég er mjög jákvæður í garð allra hvort heldur þeir eru ekta eða auka........... nei sleppum því. Lífið er skemmtilegt.
Ég er minna neikvæður en vanalega... Ég bókstaflega er að springa úr óneikvæðum hugsunum.
Ég er líka í ótrúlega góðu skapi, en ólíkt mörgum hér er það ekkert óvenjulegt en þannig er nefnilega mál með vexti að ég var að kaupa mér bassamagnara fyrir bassann sem ég hafði keypt föstudaginn síðasta, þann þrettánda.
Hér er svo mikið af fallegu og góðu fólki að það er ekki hægt annað en að vera í góðu skapi. [Brosir út í bæði]
Ég er svo glimrandi jákvæður að ég gæti faðmað þá sem ég þoli jafnan ekki svo mikið og fast að rifbein þeirra brotna og þrengja að lungunum svo þeir geti ekki andað þannig að hægt og rólega fjarar líf þeirra út.
Er jákvæð að eðlisfari [ljómar upp]
Og það versnar ekkert við smá ákavíti...
Ég er í glasi!
Obboðslega er þetta stórt glas. O.o
Ég er einnig í æðislega góðu skapi!
Allir í góðum sköpum?
Ég er ennþá í góðu skapi. Er að fara að snæða hádegisferð á góðum stað með góðu fólki. [Ljómar upp]
Þarfagreinir minn, svona hugsunarháttur gengur ekki og hefur orðið til þess að flest stríð og styrjaldir hafa náð að brjótast út og breiðast út jafn óðfluga og raun ber vitni. Um leið og menn gera sér grein fyrir því að ENGINN frekar en allir eru jafnir, þá fyrst fer þjóðfélagið að snúast aftur í sína eðlilegu, upphaflegu hringrás.
Ég hef sjálfur svo oft orðið útundan í þjóðfélaginu að þegar aðrir tala um hópvinnu þá hlæ ég nema ef um nauðsynlega hópvinnu er að ræða eins og t.d. þegar læknar og hjúkrunafræðingar eru að vinna saman í hópum á spítölum til að aðstoða sjúklinga.
Ég er í góðu skapi og mér lýður býsna vel. Ég nýt mín og er sáttur við lífið og tilveruna. Þá mun ég ekki nokkurn tímann nafngreina gestapóa eða Baggalúting þar sem þess er engin sérstök þörf að mínu mati.
gleymdi að enda setningu......´þá mun ég ekki nokkurn tímann nafngreina gestapóa etc.......´framar´´.
Það vill ég ekki vera með. Hjer ætlum við að vera jákvæðir og sleppa allri neikvæðni. Aðeins einn maður má vera með neikvæðni og segja nei fyrir mér - Árni Mathiesen.
Mikið er jákvætt að þetta rit er aftur á forsíðunni... það þýðir að Úlfamaðurinn hefur strokað út sín félagsrit...
Er ekki tímabært að gera eitthvað sérlega jákvætt og bætandi?
Hvað er betra en ganga endanlega frá varúlfskvikindinu