Í dag slysaðist ég til að byrja að reykja.
Mánudagur.
Þarf að segja meir?
Flott mál. Þá er einum færri sem ég þarf að hafa áhyggjur að mæti í jarðarförina mína og prumpi á þriðja bekk. Þú verður dauður löngu á undan mér.
ps. ef þú biður fallega skal ég mæta í jarðarförina þína og prumpa á þriðja bekk.
Já veistu mér finnst það. Mér finnst að það þurfi að segja meir(a)! Mér finnst það vera fyrir neðan virðingu fingra minna að þurfa á ýta á fyrirsögn þessa svokallaða félagsrits, til þess eins að finna þetta þvaður. Ef þú getur ekki látið þér detta áhugaverðara, skemmtilegra eða bara lengra rit í hug, skaltu bara vera úti!
Já bíddu nú bara hæg. Ég er ekki búinn.
Slysaðist til að reka þetta félagsrit inn óklárað, og þótti ekki tilgangur í að standa í því að fjarlægja það svona rétt á meðan ég drulla þessu niður.
Innihaldsrýrt félagsrit. Það verður að segjast.
Svo auglýsir þú sígarettur á opinberum stafrænum vettvangi. Nú máttu eiga von á Þorgrími á hverri stundu. Hann væri vís til að heilsa þér með öxi í ennið.
Slysaðist þú til þess að byrja að reykja? Varstu að halla þér yfir búðarborðið í Bónus þegar þú barasta dattst á höfuðið og lentir beint undir borðinu og vissir ekki hvaðan á þig stóð veðrið þegar þunginn af skrokknum á þér olli skammhlaupi í afgreiðslufæribandinu sem allt í einu stóð í ljósum logum og kveikti í sígarettubyrgðunum undir því, þar sem þú lást með hausinn á kafi í hrúgu af Lucky Strike pökkum og jú, þurftir auðvitað að anda?
Öss...
Svipað vitlaust og að detta á tittling og verða ólétt.