Strákarnir í ritstjórninni eru hreint ótrúlegir!
Kærar þakkir fyrir skjót viðbrögð. Svo er myndin líka mjög flott. Fullt hús stiga.
Hér kemur stigagjöfin dálítið kostulega út. Engu er líkara en Dio sé nýgræðingur og Barbie tossi en hvort tveggja ku vera fjarri sanni.
Og það er galli að geta eigi leiðrétt texta hér, þetta átti að vera "...Barbie sé nýgræðingur og Dio tossi en hvort tveggja ku vera fjarri sanni."
Byrjuðu þið saman eftir að ég rakst á ykkur saman í heita pottinum og partýið leystist upp?
Nei, það var eftir mjög vel heppnað stefnumót utan Baggalútíu og vorum við því saman þegar partýið góða var hér á ,,Hverjir eru inni?" þræðinum.