— GESTAPÓ —
Crick
Nýgræðingur.
Pistlingur - 9/12/03
Þynnkan tekin í gegn

Hvernig stendur eiginlega á því að maður er ekki búin að finna upp þynnkubanann? <br /> <br /> Maður er nú heldur betur búin að klára flóknari sjúkdóma en það. <br />

30.08.2004

Jú, svarið liggur sennilega í að ríkisstjórnir, læknar eða bisnesmenn eru haldnir þeirri trú að ef maður gæti læknað þessa vanlíðan með einni pillu myndu allir fara að drekka óhamið og mankynið myndi aldrei bíða þess bætur. Svo má nú líka segja að það sé ástæða fyrir því að líkamin er að gefa frá sér merki um að ekki hafi verið allt með feldu í gær þegar þér drukkuð svona mikið kvöldið áður en þér urðuð þyrstir.

Einn skaðvaldur er eins og allir þekkja að maður er búin að míga svo mikið að maður getur ekki einu sinni fellt tár yfir beljandi höfuðverknum.
Ethanol er vatnslosandi og veldur þessum ósöfnuði. Sagt á annan hátt þá verkar Ethanol á heiladíngul og blokkerar þar framleiðslu á hormóninu vesopressin sem gegnir því hlutverki að segja nýrunum að endurvinna vatn sem annars myndi lenda í þvagblöðrunni.
Segja má að með þessu sé búið að slökkva á vökvajafnvægisrofa líkamans og eðlileg þvaglát breytast í flóð. [ Gefur frá sér vellíðunarstunu og fær sé vatnssopa ]

Til þess að bregðast við þessu fær líkamin lánað vatn úr öðrum hlutum líkamans, þar á meðal heilanum. Þetta veldur því að heilinn skreppur saman, eða réttara sagt himna í kringum heilan sem svo strekkir á einskonar höfukúputaugaendafestingum sem valda geigvænlegum sársauka.

Þynnkuráð 1.
Drekka heilan helvítis helling af vatni:
- á meðan maður er að drekka (hægt er að stelast til að fá sér vatn td. þegar maður fer á klóstið)
- áður en maður fer að sofa
- þegar maður vaknar

Ekki nóg með að maður losar sig við allt of mikið af vatni heldur fer sykurjafnvægið líka algerlega úr skorðum. Alkaholið ræðst á orkuríkt-glykogen í lifrinni og brýtur það niður í glúkósa. Glúkósinn veit ekki betur og skellir sér út í þvagið og maður mígur þvi með öllu vatninu.
Þetta veldur því að maður er orkulaus og aumingjalegur dagin eftir drykkju. Ekki skal þó gleyma mönchinu! Ástæðan fyrir því að margir verða brjálæðislega hungraðir þegar komið er heim (eða á leiðinni heim) frá neyslunni er einmitt þetta sykur ójafnvægi.

Þynnkuráð 2.
- fáðu sér sætindi af og til á meðan drykkju stendur
- góð máltíð fyrir svefnin getur hjálpað en pönnukökur með sírópi er best

Neisla áfengis myndar tvö mjög eytruð efni í líkamanum: acetaldehyde og malondialdehyde. Þessu tvö efni valda miklum skemdum á fríum radikölum um allan kropp. Þetta er megin ástæða þess að fólki lýður svona illa þegar það hefur neitt áfengis í óhófi. Ef maður tekur inn passandi magn af antíoxidöntum á meðan drykkju stendur eða áður en lagst er til hvílu má koma í veg fyrir megnið af timburmönnunum og þeim skemdum sem annars verða á frumum.

Undralyfið virðist vera N-acetyl-cysteine (NAC), sem er ammínósýru duft sem selt er í heilsubúðum. NAC er talið hjálpa líkanum að höndla eytið sem safnast fyrir í lifrinni (kallast fríir radíkalar) þegar ensími brjóta niður ethanol. Glutathione sér venjulega um að sópa fríum radíkölum í burtu en þegar mikið er drukkið minkar lagerinn af þessum þörfu þjónum mikið. NAC hjálpar til vegna þess að það inniheldur mikið af cysteine, sem er súlfúrrík ammínósýra og grunnefnið í glutathione. Þannig að ef maður er með góðan lager af cysteine, heldur maður einnig fínum lager af glutathione svo maður getur verið að losa sig við fríu radíkalana í lengri tíma, sem að lokum þýðir minni timburmenn.

Þynnkuráð 3.
- fáðu þér NAC á meðan drykkju stendur eða áður en lagst er til hvílu.
- farðu heim með vaxtaræktar kempu og vittu hvor han á ekki NAC fyrir svefnin.

Ekki er þó gamla ráðið með að fá sér megamáltíð áður en farið er í rúmmið algerlega galin. Flestir slíkir réttir innihalda egg sem eru full af cysteine

Ég vil svo þakka gott hljóð og vona að þetta nýtist sem flestum

   (7 af 7)  
Crick:
  • Fæðing hér: 27/8/04 18:16
  • Síðast á ferli: 8/12/04 09:00
  • Innlegg: 0
Eðli:
Veit helling um slatta af öllu!
Er stundum gagnríndur fyrir offramboð á upplýsingum, en það hefur reyndar oftast reynst kostur en galli, svo ég er ekkert að fara að hætta því.
Einlægur stuðningsmaður þessa að skoðanir og gjörðir byggi á visku, en ekki fávisku.
Fræðasvið:
Vísindamaður með stóru "vaffi". Það er held ég hægt að spyrja mig um allt. Ef ég get ekki svarað, veit ég um einhvern sem getur það, eða ég stenst ekki mátið og les mig til um efnið þar til ég er orðin saddur visku. Hefur set fram kenningu um a
Æviágrip:
Crick fæddist í Baggalútíu að tilstuðlan Vambans, sem kom honum á bragðið - og bragðið þótti mér gott.
Er áhugamaður um skemmtileg mannleg og skrifleg samskipti. Hef stundað háskólanám í heila eilífð og vonast til að geta farið að hætta því svo hægt sé at spreða eithvað af þessari þekking í múgin.
Er annars nýgræðingur á sviði nafnleindra skriflegra samskipta og ekki minst samskipta sem byggja á svo skemmtilegum og heilsteiptum fíktívum persónuleikum.