Vonandi kafnið þið í þessum forrétt eða allavegana sjáið að ykkur og kafnið á jólasteikinni...
Hér sé Guð! Alvaldið þurfti að skella sér í jólabað vegna hreingerninganna sem höfðu gert það sjálft svo skítugt - svo hann sendi mig til að koma fyrir ykkur vitinu ógeðin ykkar sem tókuð þátt í að rægja orð Vauna, étið þið eigin skít.
Það er nú Guðlast eitt og sér að þið mennirnir skulið kenna ykkur við siðmenningu og jánka svo dauða miljóna og kalla það iðnað.
Sannlega segi ég yður! - Þið mennirnir eruð fyrirlitlegasta geimrusl sem fyrirfinnst í alheiminum og kennið ykkur við líf.
Hrokinn á heima í hyldýpinu svarta - þar sem enginn er til að heyra ykkur kvarta. Lifið dauð - áfram þar eð að segja.
Alheimurinn biður að heilsa og óskar ykkur til hamingju með hlutskiptin...
Merry fucking Christmas to you.
Ég elska hlýjar kveðjur, sérstaklegar jólakveðjur.
Megi gvuð blessa þig blessaður. Bless í bili.
Halelúja! Svei mér þá ef ég hef ekki loksins fundið Guð!
Hvenær rennir þú við í þessu sólkerfi næst?
Ég verð endilega að hitta á þig og ef okkur semst þá get ég skrifað fyrir þig biblíu. Þá gæti vel farið svo að hluti jarðarbjána kysi að fylgja viturlegum ráðum þínum.
Gott að vera búinn að fá öflugan talsmann, þó ég hefði óskað þess að hann hefði vandað meira orðavalið. Haft það kristilegra. En takk samt, Finngálkn.
Takk fyrir kveðjurnar Finngálknið mitt og megir þú eiga friðarjól. [Tárast]
Þú og Vauni eigið vel saman og óska ég ykkur alls hins bezta. Farið í friði, Jóakim.
Ég hef misst af félagsritinu hans Vauna, þar sem ég var aldrei þessu vant ekki með alnetsaðgang einmitt daginn sem það var skrifað. Finngálkn, þú átt þakkir skildar fyrir að hafa bent mér á það. Ég verð að segja að mér finnst umræðan þar fara algjörlega út fyrir strikið.
Hvað með það þó að einhverjum blöskri texti þar sem spaug er gert að fæðingu Jesú og láti í ljósi þá skoðun sína í vönduðu og vel ígrunduðu máli? Er viðkomandi fífl sem verðskuldar ekkert nema skammir fyrir vikið? Sem argasti trúleysingi finnst mér umræddur texti á engan hátt móðgandi, en ég skil það vel og virði að öðrum skuli ekki vera sama.
Reynum nú svo að sýna jólaanda og lifa saman í einhvers konar sátt og samlyndi. Já, hér ert þú líka meðtalinn, Finngálksræksnið þitt.
Meira hef ég ekki um þetta mál að sega.
Ertu alveg samviskulaus mannandskoti?
Sérðu ekki að það er alvarlegur skortur á svona skítkasti hér? HALLELÚJA! Hér sé Gálkn!
Þakka þér fyrir skilaboðin Finngálkn. Þú skilar því svo kannski til Guðs fyrir mig að mér þyki þetta ákaflega leitt en ég sé að reyna að bæta mig.
Ég mun svo bíða með að óska þér gleðilegra jóla þar til þau renna upp.