kvöldhúmið speglast í innflutu gerfiharpixi
Það er ólýsanlegur fögnuður sem fylgir því að bera einhvera óskilgreinda efnablöndu á lakkið, bíða svolítið, og strjúka hana svo af með hringlaga handarhreyfingum. Því þannig afhjúpast glataður glampi í þreyttu lakkinu sem skyndilega veitir kvöldsólinni stuðning í hauststillunni. Getur verið að djúprautt yfirborð húddsins sé snertiflötur á annan veruleika?