Draumar geta gerst undarlegri en vart skemmtilegri
Það byrjaði á því að ég sofnaði, svo dreymdi mig eitthvað sem var ekkert merkilegt. Að lokum kom ég að veitingastað sem sérhæfir sig í ítalskri matargerð. Ég pantaði kjötbollur með kjötsósu. En af því að þetta var draumur þá bað ég um sérstakar kjötbollur. Ég vildi fá nr. 9 kjötbollu og nr. 5 kjötbollu. Kokkarnir voru undrandi og tjáðu mér að þeir gætu ekki matreitt þetta fyrir mér þar sem þeir vissu ekki hvernig þessar kjötbollur væru. Þeir voru hins vegar með sósuna á hreinu.
Þá kom ég með kjánalega lausn: Ég sagði við þá: "OK, þið hafið sósuna en vitið ekki bollurnar. lítið á mig, ég er nr. 9 kjötbolla, notið það sem viðmið. Nú getið þið sett þetta upp sem rétthyrndan þríhyrning. Sósan verður skemmri skammhlið og kjötbollurnar lengri skammhlið. Nú hafið þið tvö einslæga þríhyrninga og þar af leiðandi fæ ég að borða."
Þessi draumur fær 5 stjörnur fyrir skemmtanagildi og bragð.
Þú munt lenda í ástarþríhyrningi með tveimur feitum kerlingum. Og sósu.