Slatta af víni hjá Dulu ég drakk
dópaði smávegis líka.
Er nóttin var liðin ég leit þetta pakk
ljót var sú andskotans klíka.
Dula af greddu í bæinn sér brá
bölvaðan ræfil í náði
Að fótunum hennar já flatur þar lá
Frelli, sá vangefni snáði
Geðtruflað fíflið hann Galdra ég sá
gapandi eintóma þvælu.
Einn var sá maður er lamaður lá
Limbri í drullu og ælu.
Vaðalinn drukkinn að venju þar óð
Vladimír Fuckov, sá dóni.
Helvítis gerpið um tærnar mér tróð
trúlega fæddist hann róni.
Geoff hinn lærði á geðinu er
greindur í tæpara lagi
Lygina með sinni lagni út ber
lygari af þessu tagi.
Kondensatorinn víst Klepptækur er
klikkaðri sjást menn hér ekki
Af aumingjum flestum sá bastarður ber
bjánann skal setja í hlekki.
Snemma í morgun ég snögglega sá
snarbilað, helvítis pakkið.
Ógeðslegt hyskið ég yfirgaf þá
aleinn ég totta nú krakkið.
"Dula af greddu í bæinn sér brá
bölvaðan ræfil í náði". Hehe. Skemmtilega ort og af þér mætti ungviðið læra. Skál!
Mér sýndist nú að þér leiddist ekkert þarna gamli lyfjabelgurinn þinn.
Flottar vísur hjá þér.
Hehehehehehe , afsakið mig ofurölvi elskuddnar. Takk fyrir drengilega frammistöðu.
Eftirherman sagði það sem ég ætlaði að segja (nema þetta með Dulu og gredduna)... skál gamli ..
Ég á enn eftir að fá mér í glas með þér... verst að þú ert bindindismaður...
Dr. Vímus fór á kostum og hélt langan fyrirlestur um tungusmellingar í tungumálum. Meðal annars benti doktorinn á að til væri tungumál í Suður Afríku sem fæli í sér þetta sérkennilega smellihljóð. Spunnust miklar umræður út frá þessu.
Verst hvað við fórum snemma. Partýið hefur greinilega ekki verið byrjað þegar við fórum.
Alltaf ég jafn óheppin. Var laungu farinn og fékk þar af leiðandi ekki vísu um hversu geðtruflaður drullusokkur ég er. En það kemst enginn með nasahárinn þar sem þú hefur boruna, í því að yrkja hugnæmar og fallegar vísur.
Bölvanlegt að liggja lasinn í gær! Braggaðist aðeins í dag og brá mér aðeins af bæ sem ég hefði betur látið ógert þar sem ég versnaði í kvöld. En stórgóðar vísur gamli.
Stórskemmtilegur kveðskapur en að sjálfsögðu könnumst vjer ekkert við innihald hans [Læðist burt].
Vímus, þetta er helvíti gott hjá þér - eins og svo oft áður. (Tek samt skýrt fram að ég er ekki og hef ekki verið í klíku með Vímusi og mér vitanlega höfum við ekki hist í svk raunheimum.)