Ég er farinn að hafa verulegar áhyggjur af helvítis fíkninni sem virðist vera að heltaka mig.
Ég hreinlega átta mig ekki á því sem er að ske. Það er alveg sama hvað ég reyni, ég get greinilega ekki hætt þessari óreglu.
Allt mitt líf er að öðru leyti í lagi. Sem endranær þá drekk ég tuttugu til þrjátíu bjóra á dag. Sami skammtur af amfetamíni, þ.e.a.s. 30 töflur á dag. Mogadon, diazepam og rohipnol, ca 50 töflur. Ég sef eins og venjulega, 5 tíma á 2-3 sólarhringa fresti.
Þetta hef ég gert án verulegra vandræða í 40 ár
Það sem ég ætlaði að tala um er sú fíkn sem þessi andskotans Baggalútur er Ég sit við tölvuna sólarhringum saman og tek þátt í einhverju fjandans bulli, sem greinilega mökkruglaðir menn standa fyrir. Hafi þið aldrei reynt að hætta þessu? og hvernig hefur það gengið? Ég hef áhyggjur af þessu. Verð að segja það.