— GESTAPÓ —
Anna Panna
Heiðursgestur.
Dagbók - 31/10/04
Getur verið...

Mér finnst svo gaman þegar heimurinn hlustar á mig. Í gær var ég mikið að velta því fyrir mér hvort ég ætti ekki bara að fara að biðja um launahækkun í annarri vinnunni minni, hugsaði málið út frá öllum hliðum og ákvað að geyma það fram að áramótum.
Í dag mætti ég svo í vinnuna og var boðuð á fund með framkvæmda- og fjármálastjórum þar sem mér var boðið að taka við ákveðnu verkefni um áramótin og fá launahækkun!
Getur verið að ég sé Guð?! ‹fær mikilmennskubrjálæðiskast›

   (18 af 21)  
31/10/04 21:01

Skabbi skrumari

[Hneygir sig og bugtar til öryggis]

31/10/04 21:01

Gísli Eiríkur og Helgi

Til hamingju með nýu launinn. Þú gleymir vel ekki frýdeiginum á mánudagginn út af því?

31/10/04 21:01

Anna Panna

Nei nei, ég mæti syngjandi í bæinn á mánudaginn og hef hátt! Og ég ætla að hafa gott veður! [lætur reyna á nýju hæfileikana]

31/10/04 21:01

Gísli Eiríkur og Helgi

Kæra Anna Panna 'eg er alveg til í að tilbiðja þig um æfi alla ef þú fixar soldið frið á jörðinnni og jafnrétti milli kynja og kynþátta. Gaman væri einnig ef þú gætir séð til að smáfuglarnir feingu nóg að éta í vetur og utangarðsmennirnir í bænum komist í meðferð og Sjálfstæðisflokkurinn tapi næstu kosningum
mig langar soldið í nýann mp3 spilara líka elsku Anna Panna

31/10/04 22:00

Ríkisarfinn

Já til lukku. Tek undir orð Gísla, Eiríks og Helga, nema með MP3 spilarann, hann hefur ekkert að gera við svoleiðis apparat.

31/10/04 22:01

Ísdrottningin

Ég vissi þetta alltaf, þetta hefur með fæðingartímann þinn að gera...

31/10/04 23:00

Guð Almáttugur

Sannliga segi ég yður: Þér verðið látin dúsa í hreinsunareldinum í heilan mánuð fyrir að látast vera ég!

31/10/04 23:00

Ísdrottningin

Æ góði farðu til sálfræðings.

31/10/04 23:02

Guð Almáttugur

[Sendir hitabylgju á Ísdrottninguna]

Anna Panna:
  • Fæðing hér: 5/5/04 12:08
  • Síðast á ferli: 16/12/23 11:57
  • Innlegg: 4727
Eðli:
Óeðlileg í flesta staði.
Fræðasvið:
Nýliðun í sögu Bagglýska heimsveldisins og innflytjendafræði.
Æviágrip:
Anna Panna Pottfjörð endurfæddist á dimmu haustkvöldi í rigningu og roki og verður ævin ágripuð eftir þörfum.
1. ágrip: Eftir þokukennd ár í landi Ísa gerðist fröken Panna hluti af útrásarher bagglýska heimsveldisins í Danmörku.
2. ágrip: Fæst nú einnig með háskólagráðu