Ég held ég verði að stramma mig af til að klökkna ekki...
Ákaflega er ég búinn að eiga góðan dag. Eftir langa... fjarvist, hitti ég aftur hefðarfólk Baggalútíu og er boðinn velkominn með virktum. Ég met viðmót allra mikils, en mest þótti mér koma til gjafa sem hin göfuga Júlía færði mér.
Að ótöldum fótskemli einum haganlega byggðum gaf hún mér eftirfarandi:
Sérsaumaðan og sérmerktan slopp
Flókaskó
Kasmírullartrefil
Spjátrungslegan göngustaf
Mér þótti svo mikið um að ég hef ákveðið að klæðast ávalt slopp við öll tilefni. Sloppurinn er að sjálfsögðu af bestu gerð og ætti því að sóma sér vel hvort sem er í ráðuneytinu eða kokkteilveislum. Trefillinn sér svo um að ég hafi yfir mér virðulegan blæ og heldur ennfremur á mér hita. Flókaskórnir eru með eindæmum þægilegir og stafurinn hugulsöm viðbót. Hann er níðsterkur og fer vel í kóbaltsblárri hægri hendi minni. Jafnvel eftir að veita nokkrum ákaflega þykkhöfðuðum durtum endurtekin höfuðhögg sér ekki rispu á stafnum góða.
En sloppurinn hefur haft merkilegar aukaverkanir. Nú hefur fólk nokkrum sinnum ruglast á mér og Hugh Hefner og get ég ekki sagt að um veruleg óþægindi sé að ræða. Nú er bara að vona að sænskar þríburasystur sem vinna að módelstörfum haldi að ég sé Hugh, svona í misgripum. Þær þurfa reyndar ekkert að vera sænskar og tvíburar myndu duga fínt...
Hugh er ekki eini merkismaðurinn sem fer allra sinna ferða í slopp, heldur ferðaðist Arthur Dent um Vetrarbrautina þannig klæddur. Það ætti að sýna hve hentugur þessi fatnaður er.
Svo gleymi ég næstum vindlunum. Að sjálfsögðu Cohibas, svo nú svíf ég um á ilmandi bláu skýi sem aldrei fyrr!
Seiseijá!
Verði þér að því, kæri Muss. Baggalútur var vart svipur hjá sjón án þín - ævinlega velkominn!
Og hér er ný-últrakóbalt ef þér viljið minnka bláa litinn örlítið en jafnframt neyta kóbalts án takmarkana [Færir Muss S. Sein nokkur lokuð glös full af bláu dufti]
Þvílíkar undursamlegar nýjungar sem þið hafið uppgötvað í fjarvist minni! Það verður gaman að sjá hvort ný-últrakóbalt minnkar bláa litinn á f.v. höndinni hans Davíðs...
Var búið að gauka að þér Ákavíti... ef ekki þá er hér einn kassi til að byrja með... Skál
Þakka þér kærlega Skabbi, gamli ven. Það er greinilegt að það verður ákavítispartí í Vísindaráðuneytinu í kveld.
Auðvitað var Vlad búinn að skála við mig í kóbaltbættu ákavíti, en skál Skabbi, skál Goggur, skál öllsömul!