

Í harðorðri ályktun Búnaðarþings vara Bændasamtök Íslands þjóðina eindregið við inngöngu í Evrópusambandið.
Telja samtökin víst að embættismenn ESB muni beita öllum brögðum til að sölsa undir sig íslenskan landbúnað með góðu eða illu – brenna akra, míga í brunna og skelfa búsmala með evrópskri danstónlist. Þá þykir einsýnt að reynt verði að spilla sauðfé og bændum með svíðingslegum kynbótum.
Við sama tækifæri ítrekuðu bændur eindregna andstöðu sína við gufuvélina, talsímann og internetið og samþykktu nær einróma að hætta að brennimerkja nýja félagsmenn með slagorðinu „Bóndi er bústólpi“ – en taka frekar upp húðflúrið „Mjólk er góð“.

Sturlaður Hafnfirðingur réðst á vefsíðu Baggalúts síðdegis í dag.
Maðurinn, sem er þekktur tölvuþrjótur og netníðingur, kom auga á síðuna á tölvuskjá tengdamóður sinnar og missti algerlega stjórn á skapi sínu.
Greip hann nálæga öxi og lét höggin dynja á tölvunni og ýmsum innanstokksmunum, ásamt því að brúka afar ókristilegan munnsöfnuð um ritstjórn Baggalúts, holdafar tengdamóðurinnar og Internetið almennt.
Vefsvæði Baggalúts og tengdamóðirin eru að mestu óskemmd eftir atvikið, en tölvan – sem var af asískri gerð – er gerónýt.

Ónefndur bankaráðsmaður Seðlabankans, er ekki vanhæfur til að sinna verkefnum bankaráðsins þrátt fyrir að hafa hafa skipulagt stórar svall- og mannátsveislur hjá kunnu stórfyrirtæki á útrásartímanum svokallaða.
Þetta segir formaður bankaráðs Seðlabankans, sem segir viðkomandi starfsmann hafa unnið 'drullufínt starf' í bankaráðinu og vill ógjarnan missa hann.
„Þetta er bara eitt af því sem tíðkaðist á þessum árum. Ég held að allir geti verið sammála um að þetta sé ogguponsulítið óheppilegt fyrir viðkomandi – en það er nú engin ástæða til að gera mál úr þessu.“

Gríðarleg umferð er nú um Reykjanesbraut og hafa langar raðir myndast allt frá Hafnarfirði og að Keflavíkurflugvelli.
Svo virðist sem mikill ótti hafi gripið um sig meðal landsmanna eftir að ljóst var að VG fengi úthlutað nýju innanríkisráðuneyti.
Reynir lögregla eftir fremsta megni að hafa stjórn á mannfjöldanum, en reynist sérstaklega erfitt að hafa hemil á óttaslegnum sjálfstæðismönnum, sem margir hverjir eru gersamlega sturlaðir af hræðslu.

Þjóðkirkjan hefur ákveðið að bregðast við sívaxandi ímyndarvanda sínum með því að aðlaga sig nýrri tækni og auka um leið þjónustu við kirkjugesti.
Hefur svokölluðum like-hnöppum verið komið fyrir við hvert sæti í öllum kirkjum landsins, sem fólk getur smellt á kunni það vel að meta orð prestsins, sálmasöng eða orgelspil.
Hefur nýja kerfið mælst vel fyrir og gefist vel við skírnir, brúðkaup og almennt messuhald – þó eilítið hafi borið á misnotkun þess við jarðarfarir.
Þá hefur hinu úrsérgengna 'ameni' alfarið verið skipt út fyrir hátt og snjallt 'læk!' við messuhald.

Lögreglan hefur stöðvað umfangsmikla ræktun á Maríuhana á Suðurlandi. Maríuhaninn þykir mikið lostæti, ýmist reyktur eða bakaður. Hann er hins vegar í útrýmingarhættu, enda er Maríuhaninn sveimhuga og á afar erfitt með að einbeita sér. Þar að auki gengur erfiðlega að rækta stofninn upp sökum ofsókna hinna ýmsu yfirvalda.
Forsvarsemenn ræktunarinnar héldu því fram að um misskilning væri að ræða og að ræktunin væri lögleg. Lögreglan tók hins vegar ekki mark á því og lét umsvifalaust fella allan stofninn.

Ríkisstjórnin kynnti i morgun nýtt úrræði fyrir skulduga einstaklinga og heimili; skuldagreiðslujöfnunaraðlögun.
Ekki er vitað hvernig úrræðið virkar, né fyrir hverja það er nákvæmlega - en vonast er til að það komi til með að nýtast sem flestum.

Stöð 2 hefur tryggt sér útsendingarrétt á Páli Magnússyni, útvarpsstjóra.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Stöð 2, undirritaðri af Ara Edwald, að meðfylgjandi litlum broskalli og alþjóðlegu gleðiupphrópuninni 'LOL'.
Er þetta enn eitt áfallið fyrir RÚV á skömmum tíma, en samkvæmt heimildum Baggalúts eru líkur á að fleiri fastir dagskrárliðir fylgi í kjölfarið á næstu dögum – þ.á.m. táknmálsfréttir, Kastljós, auglýsingar og hin sívinsælu dagskrárlok.
Það er þó huggun harmi gegn að RÚV mun hafa tryggt sér útsendingar á Wallander til ársloka 2052.

Samkvæmt áreiðanlegum heimildum Baggalúts stendur til að stokka ærlega upp í rikisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur.
Í stuttu símaviðtali við Jóhönnu seint í nótt kom ýmislegt fróðlegt í ljós. Æringinn og 'flippmógúllinn' Ögmundur Jónasson mun 'koma ferskur inn í innanríkissjittið' um leið og utanþingsráðherrarnir Ragna 'Gothmálagella' og Gylfi 'partípúpa' Magnússon víkja.
Þá mun Álfheiður Ingadóttir, sem hefur að sögn Jóhönnu verið 'frámunalega þurr og leiðinleg í staffapartíum' víkja fyrir nýjum stuðmálaráðherra – Gutta 'Glitter'.

Samningar hafa náðst um endurfjármögnun og áframhaldandi starfsemi útgáfu- og afþreyingarrisans Baggalúts. Ljóst er að starfsemin verður áfram á Internetinu, en um tíma var útlit fyrir að hún yrði flutt alfarið yfir á textavarpið.
Meðal nýjunga á þessu 10. starfsári Baggalúts má nefna grímulausan áróður sem við kjósum að kalla BMX – Gallsteina, stórkostlega endurbætt útlit, sem hannað er af nemendum hannyrða- og fágunarskóla Sigþrúðar í Grafarholti – auk þess sem sérstakt tillit er tekið til farsímaunnenda, sem geta nú notið lystisemda Baggalúts á m.baggalutur.is.
Að gefnu tilefni skal þó tekið fram að Randver verður ekki með að þessu sinni.


Breiðhyltska panflautuundrið Jose Guðbrandsson leikur öll vinsælustu lög Jet Black Joe.
JET BLACK JOSE
Í nýjum og spennandi útsetningum eftir föður sinn.


Fréttaþulurinn snjalli Logi Bergmann fer á kostum í stórskemmtilegri revíu.
Í FRÉTTUM ER ÞETTA HELST
Hvers vegna að lesa fréttirnar þegar þú getur sungið þær?


Loksins, loksins! Tvö heitustu bönd landsins sameina krafta sína
EGÓ OG VEÐURGUÐIRNIR
fara hamförum öll fimmtudagskvöld


Gjörningaveisla á þorra! Missið ekki af gjörningi listamannsins Spóa, þar sem hann
ríður frjálshyggju-glyðrunni á slig!
Alla miðvikudaga á þorranum.


Logi Bergmann leikur á klarínettu Hófíar!
MIKKI MÚSÍKDAGAR
alla vikuna


Sjáið hinn óviðjafnanlega Herr Doktor Bóbó þegar hann tekur Icesavelögin og treður þeim
UPP Í TROMPETIÐ Á SÉR
Alla mánudaga í vetur!!!


Gleðileikurinn drepfyndni í flutningi hins sprenghlægilega Alþings
ICESAVE
alla daga fram að jólum.


frábær söngsýning þar sem þjóðlagasólóistinn frábæri
Keytar Islancio
leikur öll sín vinsælustu þjóðlög.


Náhirð Davíðs fer á kostum í óperettunni endalausu:
Helvítið hann Egill!
Sjáið Björn og alla hina hrauna af áfergju yfir sjónvarpsmanninn gullinhærða.


Vegna fjölda áskorana Húnvetnska þjóðlagapönkdúóið
Rassgat lýðveldisins
Öll kvöld vikunnar


„Jú, pælingin er sko að mynda mótvægi við alla þessa, þúveist, fjölmiðlarisa sem eru alltaf, þúveist ... útumallt einhvernveginn,“ sagði Bör Sverrisson, annar tveggja stofnenda 366 fjölmiðladvergs sem tók til starfa í dag.
„Við verðum með sko útvarp, allavega - og jafnvel sjónvarp sko ef við fáum tökuvél - kunningi okkar á sko vél og ætlar kannski að lána okkur - en allavega semsagt útvarp og kannski eitthvað lítið blað, kannski bara, þúveist, bækling - eða bara eitthvað mjög, þúveist ... lítið.“
En af hverju þetta nafn. „Já, sko nafnið - það er sko vegna þess að við erum, þúveist, frekar litlir - miðað við ofsalega margt, skilurðu? Þannig að við ætlum bara - allavega fyrst um sinn - bara að senda sko út á, þúveist, hlaupársdag.“




Klæðskiptingar
Munið skiptimarkaðinn í Kolaportinu.
Greiðendur afnotagjalda RÚV
ekki missa af táknmálsfréttum. Nýjar þulur. Ný tákn.
Ríkisútvarpið – Sjónvarp
Til sölu
lítið notað mannorð. Nokkuð flekkað - þarfnast viðgerðar og hreinsunar.
A.v.á.
Togarasjómenn athugið!
Dönsku blússurnar komnar. Margar stærðir.
Vélasala Einars.