Frétt — Enter — 6. 3. 2006
Burt burt
Burt var vel fagnað þegar hann kom fyrst í Dýrafjörðinn árið 1999 og tók þá við af Tom Hulce. En nú er þolinmæðin á þrotum.

„Hann fékk sinn séns, en nú erum við búin að fá nóg. Hann verður að fara og hleypa öðrum að,“ segir sveitarstjóri Þingeyrarhrepps um alþjóðlegu kvikmyndastjörnuna Burt Reynolds, sem gegnt hefur stöðu frægasta Þingeyringsins frá árinu 1999.

Þær raddir hafa orðið æ háværari að Burt rými hús sitt á Þingeyri og hafi sig á brott úr fjórðungnum enda hafi hann ekki leikið í almennilegri bíómynd frá árinu 1997, þegar hann lék Jack Horner í Boogie Nights - og því sé hann sveitarfélaginu ekki til þess sóma sem honum er ætlað.

„Hann fer í nótt, með góðu eða illu,“ hefur Baggalútur eftir ónefndri húsmóður á Þingeyri, sem segir það algert hneyksli að hafa misst Tom Selleck til Tálknafjarðar á sínum tíma - „fyrir þennan lúsablesa“.

Skata

Sit fyrir mistök upp með 3 gáma af afar kæstri skötu. Kílóið á lygilegu verði. A.v.á.

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
Fr?tt ? Myglar ? 24. 4. 2023
Baggalútur kynnir nýtt lykilorð
Samningurinn handsalaður

Baggalútur hefur, í samvinnu við erlenda öryggissérfærðinga, skipt út öllum lykilorðum í tölvukerfum samsteypunnar fyrir nýtt, samræmt lykilorð af öflugustu gerð. Í takt við stefnu félagsins um gagnsætt jafnrétti verður nýja lykilorðið samnýtt af öllu starfsfólki félagsins, sem m.a. mun tryggja að engin veikburða lykilorð verða lengur í umferð.

Nýja lykilorðið, 8t0c$bMp7t^HNax1, uppfyllir ýtrustu kröfur um öryggi, bæði hvað varðar lengd og fjölbreytileika stafa.

Fr?tt ? Spesi ? 21. 9. 2022
Hálfviti segist ekki hafa kallað „hálfvita“ hálfvita
Hólmgeir kveðst alvarlega vera að hugsa um að stefna „hálfvitanum“ Þórði fyrir meiðyrði.

Hólmgeir Hrafnkelsson hálfviti segir í aðsendri grein á fréttavef Baggalúts að hann hafi aldrei kallað Þórð Þrándsson hálfvita.

„Þetta eru mjög alvarlegar ásakanir á mig,“ segir Hólmgeir í greininni. „Mér er sama hvað þessi hálfviti heldur fram, ég hef aldrei kallað hann hálfvita.“

„Þessi hálfviti hefur ítrekað sýnt af sér hálfvitalega háttsemi og það er bara hreinn og klár hálfvitaskapur í honum,“ segir Hólmgeir að lokum.

Fr?tt ? Enter ? 7. 7. 2022
Freista þess að fá apabólu fyrstir Þingeyinga
Hópurinn var við æfingar fyrir leiðangurinn í morgun.

Sérleg rannsóknarnefnd skipuð nokkrum hugprúðum mönnum á miðjum aldri freistar þess nú að fá hina dularfullu „apabólu“ fyrstir Þingeyinga, svo vitað sé.

Að sögn talsmanns hópsins ríkir mikil eftirvænting innan hans, en einnig nokkur kvíði, sem vonlegt er. Þeir hafi kynnt sér „bóluna“ nokkuð vel á undanförnum vikum, lesið sér til, sótt námskeið og telja sig býsna vel í stakk búna til að takast á við þennan óútreiknanlega vágest, sem hefur heillað marga að undanförnu. Gera þeir ráð fyrir að ljúka undirbúningi í kvöld og halda utan, áleiðis til Berlínar, snemma í fyrramálið.

Óskum við þeim félögum alls hins besta.

Frá Gatnamálastjóra

Terlínjakkarnir komnir. Margar stærðir. Svartir og bláir. Straufríir.

Fr?tt ? Enter ? 31. 5. 2021
Fann sameiginlegan snertiflöt
Hörður stóðst ekki mátið að snerta flötinn svolítið.

Hinn alræmdi fornleifafræðingur og mennþekkjari Hörður P. Einarz hefur uppgötvað sameiginlegan snertiflöt við ósamþykktan fornleifauppgröft við Holtagarða.

Er Hörður sannfærður um að snertiflöturinn sé býsna forn, eða jafnvel allt frá tímum verslunarveldisins Miklagarðs. Hefur hann fundið merki um káf, kám og jafnvel pot á fletinum.

Hörður vonast til að frekari rannsóknir á sameiginlega snertifletinum geti leitt í ljós ástæður þess að blómleg verslun leið undir lok á þessu svæði og hefur aldrei þrifist þar síðan.

Fr?tt ? Enter ? 22. 10. 2020
Betri en eiginlega allir
Baggalútur mun vera fyrsta framúrskarandi hljómsveit Íslandssögunnar.

Það er með feikimiklu stolti sem við tilkynnum að Baggalútur er í hópi Framúrskarandi fyrirtækja á Íslandi, annað árið í röð. Með því erum við ekki endilega að gera lítið úr þeim 98% fyrirtækja á Íslandi sem eru það EKKI, og eru þar af leiðandi í tómu rugli, rekstrarlega — en samt — við erum augljóslega betri en eiginlega allir.

Við þökkum árangurinn fyrst og fremst miklum árangri á menningar– og upplifunarsviði, en aukin áhætta sem fyrirtækið tók á köntrí– og aðventumarkaði á sínum tíma, þvert á spár sérfræðinga, hefur skilað sér í auknu eiginfjárhlutfalli og traustum rekstri. Þá var tekin umdeild ákvörðun innan stjórnar seint á síðasta áratug um að hætta alfarið rekstri kaffivélar, sem hefur skilað sér margfalt til baka.

Fr?tt ? Enter ? 17. 2. 2020
Myndmerki Baggalúts uppfært
Merki Baggalúts er margverðlaunað og er jafnan talið best heppnaða íslenska myndmerkið.

Hið fornfræga myndmerki (e. lógó) Baggalúts hefur verið uppfært. Er það gert til að mæta betur kröfum samtímans um skjámiðlun, skölun, formlegt hagræði og breytta merkjaskynjun nútíma skjáneytenda, eins og segir í fréttatilkynningu.

Merki Baggalúts var upprunalega hannað af vestgotnesku listakonunni Gertrude Zeta–Zebra og standa angar þess fyrir gildi Baggalúts; traustgefni, samhygli, þrautsýni, metnúð og frumkvæðni. Þá stendur hringurinn fyrir kvenlægni og miðdepillinn fyrir mangó. Undirstrikið er svo villa í teikniforritinu Paint.

Eftir talsverða yfirlegu og hreinteikningu þar sem öll form, litir og útlínur myndmerkisins voru tekin til gagngerrar endurskoðunar, með tilliti til fagurfræðilegrar og tæknilegrar nálgunar, var ákveðið að færa merkið upp um þrjá svokallaða „pixla“ — til reynslu.

2 fyrir 1 til Bagdað

Eigum örfáa miða enn til Bagdað í kvöld. Öðruvísi skrúðgöngur. Frábær stemning. Hressandi sundferðir í Tígrisfljóti með skemmtilegu fólki. Pantið miða strax.

Lúdóferðir.

Fr?tt ? Enter ? 3. 12. 2019
Aðventulag Baggalúts 2019: Afsakið þetta smáræði
Þetta er auðvitað ekki neitt neitt.

Baggalútur sendir frá sér glænýtt aðventulag sem ber heitið „Afsakið þetta smáræði.” Þar bregður ljóðmælandi sér í hlutverk hins hógværa gestgjafa, sem afsakar lítilræðið sem er á boðstólnum. Lagið er áminning um að forðast asann og stressið í desember og setjast aðeins niður og slaka á. En um leið að fara nú ekki of geyst í áti, útbelgingi og ítroðningi.

Lag og texti er eftir Braga Valdimar Skúlason en ótal valinkunnir veislugestir komu að hljóð– og leikmynd lagsins. Guðm. Kristinn Jónsson stýrði upptökum í félagi við Sigurð Guðmundsson og Ágúst Bent leikstýrði krásum hlöðnu myndbandi, sem tekið var upp í hinum fornfræga skíðaskála í Hveradölum.

Hér má horfa á myndband við þetta lítilræði

Og hér er samtíningurinn á Spotify

Fr?tt ? Enter ? 17. 6. 2019
Nýtt lag: Appelsínugul viðvörun!
Rétt er að vara við því sem fyrir eyru ber.

Í tilefni einmuna veðurblíðu sendir hljómsveitin Baggalútur frá sér nýtt lag, sem ber heitið Appelsínugul viðvörun.

Lagið er bæði uppblásið og háfleygt og er því tilvalin 17. júní blaðra til að sleppa í loftið á sjálfum þjóðhátíðardegi Íslendinga. Til lukku með lýðveldið.

Lagið er áhlýðanlegt á tónsprænunni Spotify. Því má dreifa sem víðast.

Fr?tt ? Enter ? 27. 2. 2019
Endurmörkun Megasar langt á veg komin
Ný ásýnd Megasar verður afhjúpuð á næstu vikum.

Allsherjar endurmörkun og ímyndarsköpun tónlistarmannsins Megasar er nú á lokametrunum. Að sögn yfirstílista verkefnisins hefur Megas verið endurskoðaður frá grunni, hann straumlínulagaður og útlit hans fært til nútímahorfs — án þess þó að hreyfa um of við sérkennum hans og alþýðlegu yfirbragði.

Samhliða þessu hafa textar Megasar verið einfaldaðir til muna til að ná til breiðari markhóps, auk þess sem þeir hafa verið leitarvélabestaðir og þýddir yfir á bæði hollensku og finnsku til að ná til stærra markaðssvæðis.

„Breytingin er ótrúleg. Hann hefur fengið alveg nýja litapalettu, nýtt og ferskt lógó, auk þess sem söngkonan Birgitta Haukdal mun ljá honum rödd sína. Sem er spennandi nýjung.“

Þá verða ný gildi Megasar kynnt, en þau eru ÁKEFÐ, EINURÐ og RÁÐDEILD.

Fr?tt ? Enter ? 26. 2. 2019
Gamli Nói keyrði kassabíl – þú trúir aldrei hvað gerðist næst!
Nói kann ekki heldur að poppa popp.

Karlmaður á besta aldri, Nói Albínusarson, tók kassabíl bróðursonar síns traustataki snemma í morgun og ók af stað í honum, án þess að biðja um leyfi.

Því miður kunni Nói ekki á stjórntæki bílsins og mölbraut því sérsmíðaðan gírkassa bílsins, sem hafði einmitt unnið Ofvitann, nýsköpunarverðlaun ofurgáfaðra leikskólabarna.

Nói komst við illan leik úr bílnum, sem gereyðilagðist. Hann var þó hinn hressasti og vildi ólmur sýna blaðamanni hvernig hann sýður egg.

ÞÚ TRÚIR ALDREI HVAÐ GERÐIST NÆST!



§ ÚR SAFNI BAGGALÚTS:
ÚR SAFNI — 14. 2. 2006 — Númi Fannsker

Markús Magnússon, bifreiðastjóri, hefur krafið alla sem gefið hafa út Egils sögu Skallagrímssonar frá upphafi um höfundarréttargreiðslur þar sem hann …

»MEIRA

ÚR SAFNI — 7. 9. 2005 — Spesi

Birgir Ís­leif­ur Gunnars­son, for­maður banka­stjórn­ar Seðla­bank­ans, hefur til­kynnt for­sætis­ráð­herra að hann óski eftir því að láta af störf­um 1. októ­ber. Svo …

»MEIRA

ÚR SAFNI — 19. 11. 2001 — Myglar

Færeyingar hafa lokið smíði fyrsta eldflauga-móðurskips færeyska flotans og var það sjósett í dag. Smíði skipsins er liður í viðamikilli geimvarnaáætlun …

»MEIRA

LESBÓK — Enter — Gagnrýni
 
LESBÓK — Númi Fannsker — Dagbók
 
ÚR SAFNI — 15. 12. 2003 — Spesi

Jólasveinn dagsins er Móamangi …

»MEIRA

ÚR SAFNI — 23. 11. 2001 — Númi Fannsker

Herra Ísland var valinn við hátíðlega athöfn á Guffakaffi í Dugguvogi í gærkvöldi. Hinn heppni var Eyjólfur Knútur Hannesson, 42 …

»MEIRA

ÚR SAFNI — 18. 4. 2010 — Enter

Litlu munaði að illa færi á flokkráðsfundi sjálfstæðismanna eftir að táknræn fórnarathöfn fór gersamlega úr böndunum. Með naumindum tókst að forða …

»MEIRA

LESBÓK — Enter — Dagbók
 
LESBÓK — Númi Fannsker — Dagbók
 
ÚR SAFNI — 20. 11. 2002 — Enter

"..mig bara langaði að leggja mitt af mörkum," sagði Egill Ragnarsson, leiktjaldasmiður, en hann safnaði 40 cm skeggi til styrktar …

»MEIRA

ÚR SAFNI — 26. 4. 2006 — Enter

Billy Thompson, blaðamaður á breska hannyrðatímaritinu Knitting Frenzy, er staddur hér á landi. Að eigin sögn hefur Billy ekki mikið fylgst …

»MEIRA

ÚR SAFNI — 3. 11. 2010 — Enter

Knattspyrnumaðurinn efnilegi, Eidur Gudjohnsen, hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna og reyna fyrir sér á öðrum vettvangi innan íþróttaheimsins. Hefur …

»MEIRA