Greiðendur fasteignagjalda!
Munið að þótt þið eigið í raun minna en ekkert í húsunum ykkar og bankinn gæti hirt þau af ykkur hvenær sem er, þá verðið þið samt sem áður að borga fasteignagjöldin. Svona erum við ógeðslega sniðug!
Sveitarfélögin
Auðtrúa asnar athugið!
Myntkörfulánin sívinsælu eru komin aftur!
Bankarnir
Nauðungaruppboð
Hreindýrasleði. Átta hreindýr. Rauður galli (XXXL) og nýuppgerð stúdíóíbúð á Norðurpólnum (áhvíl. 87 millj.).
Draugar athugið
erum með mikið af fallegum eignum í sölu víða á höfuðborgarsvæðinu.
Félag fasteignasala.
Vel með farið
eintak af spennusögunni „Þrír um leyndarmálið“ fæst í skiptum fyrir heillegar snjóþvegnar gallabuxur. Fullum trúnaði heitið.

Glænýtt fræði- og furðurit Baggalúts Sannleikurinn um Ísland kom í verslanir í dag. Varð mikið öngþveiti í bókaverslunum þar sem æstir kaupendur kepptust við að næla í sem flestar bækur áður en þær seldust upp. Hafa bókaverslanir brugðið á það ráð að afhenda einungis bækur gegn framvísun persónuskilríkja og má hver kaupandi einungis kaupa eina bók, fyrst um sinn að minnsta kosti.
Vill ritstjórn Baggalúts beina þeim tilmælum til kaupenda að þeir sýni stillingu og láti ekki gremju sína og æsing bitna á saklausu afgreiðslufólki bókaverslana, eins og brögð voru því miður að í dag.
Olga Benedikta Thorarensen-Warchovsky er látin, 103 ára að aldri.
Olga, sem iðulega var nefnd Rússa-Grýla, starfaði lengst af innan ...
Bandarískur sérfræðingur í samningatækni kemur til landsins á morgun og verður Íslendingum innan handar í viðræðum við Hollendinga og ...
Böðvar Brjánsson, betur þekktur sem rostungadrengurinn er látinn. Böðvar helgaði líf sitt athugunum á atferli rostunga í Norður-Íshafi og dvaldist ...
Nýr og öflugur dauðageisli er nú tilbúinn til notkunar á Rannsóknarstofu í kvenna- og kynjafræðum.
Ekki er fyllilega ljóst ...
Kvenfélagið Frunta á Bolungarvík styrkti nú nýverið Haiti-búa með glæsilegri gjöf - forláta Pentium II fartölvu með litaskjá og geisladrifi, ...
Baggalútur er hýstur með stolti hjá SKÝRR

Guðjón Þórðarson, knattspyrnuþjálfari, viðurkenndi við yfirheyrslur í morgun að hafa þjálfað íslenska landsliðið í knattspyrnu leynilega svo vikum skiptir. Svo virðist sem Guðjón hafi notfært sér bágt andlegt ástand liðsmanna og narrað þá á æfingar, oftast í skjóli nætur.
Eggert Magnússon, forseti, sagði í samtali við Baggalút að málið væri litið afar alvarlegum augum en enn ætti eftir að meta skaðann - til þess verða fengnir erlendir sérfræðingar.