

Ungur bifvélavirki, Agnar Glúmsson (30), varđ fyrir ţví ađ festa tvo útlimi í vél bifreiđar sem hann var ađ vinna í. Er taliđ líklegt ađ hér sé ekki um eintómt óviljaverk ađ rćđa.
Agnar hefur viđurkennt ađ vera haldinn mikilli bíladellu, en ţverneitar fullyrđingum vinnufélaga sinna ađ ađdáun hans á bifreiđum sé á einhvern hátt óeđlileg. Ţá segir hann ţá stađreynd ađ hann hafi aldrei veriđ viđ kvenmann kenndur ekki koma málinu ađ neinu leyti viđ.
Ţegar eigandi bifreiđarinnar kom ađ sćkja hana á verkstćđiđ, brást hann hinn reiđasti viđ. Sagđi hann Agnar hafa saurgađ djásniđ sitt og ađ hann myndi leggja fram kćru á hendur honum fyrir óviđeigandi hegđun á almannafćri, skemmdir á eignum annarra og ađ valda sér sálrćnum skađa.

Sturlađur Hafnfirđingur réđst á vefsíđu Baggalúts síđdegis í dag.
Mađurinn, sem er ţekktur tölvuţrjótur og netníđingur, kom auga á síđuna á tölvuskjá tengdamóđur sinnar og missti algerlega stjórn á skapi sínu.
Greip hann nálćga öxi og lét höggin dynja á tölvunni og ýmsum innanstokksmunum, ásamt ţví ađ brúka afar ókristilegan munnsöfnuđ um ritstjórn Baggalúts, holdafar tengdamóđurinnar og Internetiđ almennt.
Vefsvćđi Baggalúts og tengdamóđirin eru ađ mestu óskemmd eftir atvikiđ, en tölvan sem var af asískri gerđ er gerónýt.

Ónefndur bankaráđsmađur Seđlabankans, er ekki vanhćfur til ađ sinna verkefnum bankaráđsins ţrátt fyrir ađ hafa hafa skipulagt stórar svall- og mannátsveislur hjá kunnu stórfyrirtćki á útrásartímanum svokallađa.
Ţetta segir formađur bankaráđs Seđlabankans, sem segir viđkomandi starfsmann hafa unniđ 'drullufínt starf' í bankaráđinu og vill ógjarnan missa hann.
Ţetta er bara eitt af ţví sem tíđkađist á ţessum árum. Ég held ađ allir geti veriđ sammála um ađ ţetta sé ogguponsulítiđ óheppilegt fyrir viđkomandi en ţađ er nú engin ástćđa til ađ gera mál úr ţessu.

Gríđarleg umferđ er nú um Reykjanesbraut og hafa langar rađir myndast allt frá Hafnarfirđi og ađ Keflavíkurflugvelli.
Svo virđist sem mikill ótti hafi gripiđ um sig međal landsmanna eftir ađ ljóst var ađ VG fengi úthlutađ nýju innanríkisráđuneyti.
Reynir lögregla eftir fremsta megni ađ hafa stjórn á mannfjöldanum, en reynist sérstaklega erfitt ađ hafa hemil á óttaslegnum sjálfstćđismönnum, sem margir hverjir eru gersamlega sturlađir af hrćđslu.

Ţjóđkirkjan hefur ákveđiđ ađ bregđast viđ sívaxandi ímyndarvanda sínum međ ţví ađ ađlaga sig nýrri tćkni og auka um leiđ ţjónustu viđ kirkjugesti.
Hefur svokölluđum like-hnöppum veriđ komiđ fyrir viđ hvert sćti í öllum kirkjum landsins, sem fólk getur smellt á kunni ţađ vel ađ meta orđ prestsins, sálmasöng eđa orgelspil.
Hefur nýja kerfiđ mćlst vel fyrir og gefist vel viđ skírnir, brúđkaup og almennt messuhald ţó eilítiđ hafi boriđ á misnotkun ţess viđ jarđarfarir.
Ţá hefur hinu úrsérgengna 'ameni' alfariđ veriđ skipt út fyrir hátt og snjallt 'lćk!' viđ messuhald.

Lögreglan hefur stöđvađ umfangsmikla rćktun á Maríuhana á Suđurlandi. Maríuhaninn ţykir mikiđ lostćti, ýmist reyktur eđa bakađur. Hann er hins vegar í útrýmingarhćttu, enda er Maríuhaninn sveimhuga og á afar erfitt međ ađ einbeita sér. Ţar ađ auki gengur erfiđlega ađ rćkta stofninn upp sökum ofsókna hinna ýmsu yfirvalda.
Forsvarsemenn rćktunarinnar héldu ţví fram ađ um misskilning vćri ađ rćđa og ađ rćktunin vćri lögleg. Lögreglan tók hins vegar ekki mark á ţví og lét umsvifalaust fella allan stofninn.

Ríkisstjórnin kynnti i morgun nýtt úrrćđi fyrir skulduga einstaklinga og heimili; skuldagreiđslujöfnunarađlögun.
Ekki er vitađ hvernig úrrćđiđ virkar, né fyrir hverja ţađ er nákvćmlega - en vonast er til ađ ţađ komi til međ ađ nýtast sem flestum.

Stöđ 2 hefur tryggt sér útsendingarrétt á Páli Magnússyni, útvarpsstjóra.
Ţetta kemur fram í tilkynningu frá Stöđ 2, undirritađri af Ara Edwald, ađ međfylgjandi litlum broskalli og alţjóđlegu gleđiupphrópuninni 'LOL'.
Er ţetta enn eitt áfalliđ fyrir RÚV á skömmum tíma, en samkvćmt heimildum Baggalúts eru líkur á ađ fleiri fastir dagskrárliđir fylgi í kjölfariđ á nćstu dögum ţ.á.m. táknmálsfréttir, Kastljós, auglýsingar og hin sívinsćlu dagskrárlok.
Ţađ er ţó huggun harmi gegn ađ RÚV mun hafa tryggt sér útsendingar á Wallander til ársloka 2052.

Samkvćmt áreiđanlegum heimildum Baggalúts stendur til ađ stokka ćrlega upp í rikisstjórn Jóhönnu Sigurđardóttur.
Í stuttu símaviđtali viđ Jóhönnu seint í nótt kom ýmislegt fróđlegt í ljós. Ćringinn og 'flippmógúllinn' Ögmundur Jónasson mun 'koma ferskur inn í innanríkissjittiđ' um leiđ og utanţingsráđherrarnir Ragna 'Gothmálagella' og Gylfi 'partípúpa' Magnússon víkja.
Ţá mun Álfheiđur Ingadóttir, sem hefur ađ sögn Jóhönnu veriđ 'frámunalega ţurr og leiđinleg í staffapartíum' víkja fyrir nýjum stuđmálaráđherra Gutta 'Glitter'.

Samningar hafa náđst um endurfjármögnun og áframhaldandi starfsemi útgáfu- og afţreyingarrisans Baggalúts. Ljóst er ađ starfsemin verđur áfram á Internetinu, en um tíma var útlit fyrir ađ hún yrđi flutt alfariđ yfir á textavarpiđ.
Međal nýjunga á ţessu 10. starfsári Baggalúts má nefna grímulausan áróđur sem viđ kjósum ađ kalla BMX Gallsteina, stórkostlega endurbćtt útlit, sem hannađ er af nemendum hannyrđa- og fágunarskóla Sigţrúđar í Grafarholti auk ţess sem sérstakt tillit er tekiđ til farsímaunnenda, sem geta nú notiđ lystisemda Baggalúts á m.baggalutur.is.
Ađ gefnu tilefni skal ţó tekiđ fram ađ Randver verđur ekki međ ađ ţessu sinni.


Breiđhyltska panflautuundriđ Jose Guđbrandsson leikur öll vinsćlustu lög Jet Black Joe.
JET BLACK JOSE
Í nýjum og spennandi útsetningum eftir föđur sinn.


Fréttaţulurinn snjalli Logi Bergmann fer á kostum í stórskemmtilegri revíu.
Í FRÉTTUM ER ŢETTA HELST
Hvers vegna ađ lesa fréttirnar ţegar ţú getur sungiđ ţćr?


Loksins, loksins! Tvö heitustu bönd landsins sameina krafta sína
EGÓ OG VEĐURGUĐIRNIR
fara hamförum öll fimmtudagskvöld


Gjörningaveisla á ţorra! Missiđ ekki af gjörningi listamannsins Spóa, ţar sem hann
ríđur frjálshyggju-glyđrunni á slig!
Alla miđvikudaga á ţorranum.


Logi Bergmann leikur á klarínettu Hófíar!
MIKKI MÚSÍKDAGAR
alla vikuna


Sjáiđ hinn óviđjafnanlega Herr Doktor Bóbó ţegar hann tekur Icesavelögin og tređur ţeim
UPP Í TROMPETIĐ Á SÉR
Alla mánudaga í vetur!!!


Gleđileikurinn drepfyndni í flutningi hins sprenghlćgilega Alţings
ICESAVE
alla daga fram ađ jólum.


frábćr söngsýning ţar sem ţjóđlagasólóistinn frábćri
Keytar Islancio
leikur öll sín vinsćlustu ţjóđlög.


Náhirđ Davíđs fer á kostum í óperettunni endalausu:
Helvítiđ hann Egill!
Sjáiđ Björn og alla hina hrauna af áfergju yfir sjónvarpsmanninn gullinhćrđa.


Vegna fjölda áskorana Húnvetnska ţjóđlagapönkdúóiđ
Rassgat lýđveldisins
Öll kvöld vikunnar


Íbúar Alţýđulýđveldisins Kína, svokallađa, fagna í nćstu viku áramótum en ţá líđur ár marhnútssins undir lok og viđ tekur ár hanans, eins og ţađ er kallađ.
Mikiđ verđur um dýrđir á meginlandi Kína svo og međal svokallađra Kínverja víđsvegar um heim. Samskonar Kínverjar, sem búsettir eru hér á landi, ćtla ekki ađ láta sitt eftir liggja og munu fjölmenna á veitingastađinn KFC í Skeifunni ţann 9. febrúar nćstkomandi og snćđa ţar hanaket ađ fornum siđ.
Svokallađ Sendiráđ ţessa meinta Alţýđulýđveldis mun svo fagna nýja árinu međ hefđbundnu uppistandskvöldi á Grandrokk enda er grín ein meginstođ klassískrar kínverskrar menningar.




Klćđskiptingar
Muniđ skiptimarkađinn í Kolaportinu.
Greiđendur afnotagjalda RÚV
ekki missa af táknmálsfréttum. Nýjar ţulur. Ný tákn.
Ríkisútvarpiđ Sjónvarp
Til sölu
lítiđ notađ mannorđ. Nokkuđ flekkađ - ţarfnast viđgerđar og hreinsunar.
A.v.á.
Togarasjómenn athugiđ!
Dönsku blússurnar komnar. Margar stćrđir.
Vélasala Einars.