Frétt — Númi Fannsker — 13. 11. 2001
Umhverfisráðherra veitir leyfi til förgunar
Starfsmaður ChemPol á Húsavík í gær

Siv Friðleifsdóttir veitti í gær pólska fyrirtækinu ChemPol Inc. einkaleyfi á förgun "umframframleiðslu í kjarnorkuiðnaði og tilfallandi efnum í kemískum iðnaði", eins og segir í fréttatilkynningu frá umhverfisráðuneytinu. Þetta er mikill sigur fyrir Siv sem hefir verið ötull baráttumaður fyrir aukinni losun þrávirkra efna við Ísland, enda sinnir hún starfi sínu af mikilli alúð og alvöru.

Nokkrar gagnrýnisraddir heyrðust á Alþingi í gær, Steingrímur Jamal vísaði til að mynda til ýmissa alþjóðlegra sáttmála um losun þrávirkra og "hættulegra" efna. "Lengi tekur sjórinn við", var svar Sivjar sem stjórnarflokkarnir tóku undir með dynjandi lófataki og húrrahrópum.

"Við þurfum að gera okkur grein fyrir því að Íslendingar hafa ALDREI losað slík efni í náttúru sinni. Af hverju ættum við ekki að mega það eins og aðrar þjóðir á undan okkur, ég tala nú ekki um þegar dágóður peningur er í spilinu?", spurði umhverfisráðherra.

Samkvæmt heimildum Baggalúts mun ríkissjóður græða allt að 27 krónur á hvert tonn sem sökkt verður í Faxaflóa, Húnaflóa og Skjálfanda.

Átt þú erfitt með svefn?

Nýja SigurRósar platan er væntanleg í verzlanir okkar.

Hólavallaapótek.

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
Fr?tt ? Myglar ? 24. 4. 2023
Baggalútur kynnir nýtt lykilorð
Samningurinn handsalaður

Baggalútur hefur, í samvinnu við erlenda öryggissérfærðinga, skipt út öllum lykilorðum í tölvukerfum samsteypunnar fyrir nýtt, samræmt lykilorð af öflugustu gerð. Í takt við stefnu félagsins um gagnsætt jafnrétti verður nýja lykilorðið samnýtt af öllu starfsfólki félagsins, sem m.a. mun tryggja að engin veikburða lykilorð verða lengur í umferð.

Nýja lykilorðið, 8t0c$bMp7t^HNax1, uppfyllir ýtrustu kröfur um öryggi, bæði hvað varðar lengd og fjölbreytileika stafa.

Fr?tt ? Spesi ? 21. 9. 2022
Hálfviti segist ekki hafa kallað „hálfvita“ hálfvita
Hólmgeir kveðst alvarlega vera að hugsa um að stefna „hálfvitanum“ Þórði fyrir meiðyrði.

Hólmgeir Hrafnkelsson hálfviti segir í aðsendri grein á fréttavef Baggalúts að hann hafi aldrei kallað Þórð Þrándsson hálfvita.

„Þetta eru mjög alvarlegar ásakanir á mig,“ segir Hólmgeir í greininni. „Mér er sama hvað þessi hálfviti heldur fram, ég hef aldrei kallað hann hálfvita.“

„Þessi hálfviti hefur ítrekað sýnt af sér hálfvitalega háttsemi og það er bara hreinn og klár hálfvitaskapur í honum,“ segir Hólmgeir að lokum.

Fr?tt ? Enter ? 7. 7. 2022
Freista þess að fá apabólu fyrstir Þingeyinga
Hópurinn var við æfingar fyrir leiðangurinn í morgun.

Sérleg rannsóknarnefnd skipuð nokkrum hugprúðum mönnum á miðjum aldri freistar þess nú að fá hina dularfullu „apabólu“ fyrstir Þingeyinga, svo vitað sé.

Að sögn talsmanns hópsins ríkir mikil eftirvænting innan hans, en einnig nokkur kvíði, sem vonlegt er. Þeir hafi kynnt sér „bóluna“ nokkuð vel á undanförnum vikum, lesið sér til, sótt námskeið og telja sig býsna vel í stakk búna til að takast á við þennan óútreiknanlega vágest, sem hefur heillað marga að undanförnu. Gera þeir ráð fyrir að ljúka undirbúningi í kvöld og halda utan, áleiðis til Berlínar, snemma í fyrramálið.

Óskum við þeim félögum alls hins besta.

Greiðendur afnotagjalda RÚV

ekki missa af táknmálsfréttum. Nýjar þulur. Ný tákn.

Ríkisútvarpið – Sjónvarp

Fr?tt ? Enter ? 31. 5. 2021
Fann sameiginlegan snertiflöt
Hörður stóðst ekki mátið að snerta flötinn svolítið.

Hinn alræmdi fornleifafræðingur og mennþekkjari Hörður P. Einarz hefur uppgötvað sameiginlegan snertiflöt við ósamþykktan fornleifauppgröft við Holtagarða.

Er Hörður sannfærður um að snertiflöturinn sé býsna forn, eða jafnvel allt frá tímum verslunarveldisins Miklagarðs. Hefur hann fundið merki um káf, kám og jafnvel pot á fletinum.

Hörður vonast til að frekari rannsóknir á sameiginlega snertifletinum geti leitt í ljós ástæður þess að blómleg verslun leið undir lok á þessu svæði og hefur aldrei þrifist þar síðan.

Fr?tt ? Enter ? 22. 10. 2020
Betri en eiginlega allir
Baggalútur mun vera fyrsta framúrskarandi hljómsveit Íslandssögunnar.

Það er með feikimiklu stolti sem við tilkynnum að Baggalútur er í hópi Framúrskarandi fyrirtækja á Íslandi, annað árið í röð. Með því erum við ekki endilega að gera lítið úr þeim 98% fyrirtækja á Íslandi sem eru það EKKI, og eru þar af leiðandi í tómu rugli, rekstrarlega — en samt — við erum augljóslega betri en eiginlega allir.

Við þökkum árangurinn fyrst og fremst miklum árangri á menningar– og upplifunarsviði, en aukin áhætta sem fyrirtækið tók á köntrí– og aðventumarkaði á sínum tíma, þvert á spár sérfræðinga, hefur skilað sér í auknu eiginfjárhlutfalli og traustum rekstri. Þá var tekin umdeild ákvörðun innan stjórnar seint á síðasta áratug um að hætta alfarið rekstri kaffivélar, sem hefur skilað sér margfalt til baka.

Fr?tt ? Enter ? 17. 2. 2020
Myndmerki Baggalúts uppfært
Merki Baggalúts er margverðlaunað og er jafnan talið best heppnaða íslenska myndmerkið.

Hið fornfræga myndmerki (e. lógó) Baggalúts hefur verið uppfært. Er það gert til að mæta betur kröfum samtímans um skjámiðlun, skölun, formlegt hagræði og breytta merkjaskynjun nútíma skjáneytenda, eins og segir í fréttatilkynningu.

Merki Baggalúts var upprunalega hannað af vestgotnesku listakonunni Gertrude Zeta–Zebra og standa angar þess fyrir gildi Baggalúts; traustgefni, samhygli, þrautsýni, metnúð og frumkvæðni. Þá stendur hringurinn fyrir kvenlægni og miðdepillinn fyrir mangó. Undirstrikið er svo villa í teikniforritinu Paint.

Eftir talsverða yfirlegu og hreinteikningu þar sem öll form, litir og útlínur myndmerkisins voru tekin til gagngerrar endurskoðunar, með tilliti til fagurfræðilegrar og tæknilegrar nálgunar, var ákveðið að færa merkið upp um þrjá svokallaða „pixla“ — til reynslu.

Á að mótmæla?

Heykvíslar, tjara, fiður og lambhússettur í miklu úrvali. Einnig auðmannavúdúdúkkurnar vinsælu.
Mótmælaþjónusta Magga.

Fr?tt ? Enter ? 3. 12. 2019
Aðventulag Baggalúts 2019: Afsakið þetta smáræði
Þetta er auðvitað ekki neitt neitt.

Baggalútur sendir frá sér glænýtt aðventulag sem ber heitið „Afsakið þetta smáræði.” Þar bregður ljóðmælandi sér í hlutverk hins hógværa gestgjafa, sem afsakar lítilræðið sem er á boðstólnum. Lagið er áminning um að forðast asann og stressið í desember og setjast aðeins niður og slaka á. En um leið að fara nú ekki of geyst í áti, útbelgingi og ítroðningi.

Lag og texti er eftir Braga Valdimar Skúlason en ótal valinkunnir veislugestir komu að hljóð– og leikmynd lagsins. Guðm. Kristinn Jónsson stýrði upptökum í félagi við Sigurð Guðmundsson og Ágúst Bent leikstýrði krásum hlöðnu myndbandi, sem tekið var upp í hinum fornfræga skíðaskála í Hveradölum.

Hér má horfa á myndband við þetta lítilræði

Og hér er samtíningurinn á Spotify

Fr?tt ? Enter ? 17. 6. 2019
Nýtt lag: Appelsínugul viðvörun!
Rétt er að vara við því sem fyrir eyru ber.

Í tilefni einmuna veðurblíðu sendir hljómsveitin Baggalútur frá sér nýtt lag, sem ber heitið Appelsínugul viðvörun.

Lagið er bæði uppblásið og háfleygt og er því tilvalin 17. júní blaðra til að sleppa í loftið á sjálfum þjóðhátíðardegi Íslendinga. Til lukku með lýðveldið.

Lagið er áhlýðanlegt á tónsprænunni Spotify. Því má dreifa sem víðast.

Fr?tt ? Enter ? 27. 2. 2019
Endurmörkun Megasar langt á veg komin
Ný ásýnd Megasar verður afhjúpuð á næstu vikum.

Allsherjar endurmörkun og ímyndarsköpun tónlistarmannsins Megasar er nú á lokametrunum. Að sögn yfirstílista verkefnisins hefur Megas verið endurskoðaður frá grunni, hann straumlínulagaður og útlit hans fært til nútímahorfs — án þess þó að hreyfa um of við sérkennum hans og alþýðlegu yfirbragði.

Samhliða þessu hafa textar Megasar verið einfaldaðir til muna til að ná til breiðari markhóps, auk þess sem þeir hafa verið leitarvélabestaðir og þýddir yfir á bæði hollensku og finnsku til að ná til stærra markaðssvæðis.

„Breytingin er ótrúleg. Hann hefur fengið alveg nýja litapalettu, nýtt og ferskt lógó, auk þess sem söngkonan Birgitta Haukdal mun ljá honum rödd sína. Sem er spennandi nýjung.“

Þá verða ný gildi Megasar kynnt, en þau eru ÁKEFÐ, EINURÐ og RÁÐDEILD.

Fr?tt ? Enter ? 26. 2. 2019
Gamli Nói keyrði kassabíl – þú trúir aldrei hvað gerðist næst!
Nói kann ekki heldur að poppa popp.

Karlmaður á besta aldri, Nói Albínusarson, tók kassabíl bróðursonar síns traustataki snemma í morgun og ók af stað í honum, án þess að biðja um leyfi.

Því miður kunni Nói ekki á stjórntæki bílsins og mölbraut því sérsmíðaðan gírkassa bílsins, sem hafði einmitt unnið Ofvitann, nýsköpunarverðlaun ofurgáfaðra leikskólabarna.

Nói komst við illan leik úr bílnum, sem gereyðilagðist. Hann var þó hinn hressasti og vildi ólmur sýna blaðamanni hvernig hann sýður egg.

ÞÚ TRÚIR ALDREI HVAÐ GERÐIST NÆST!



§ ÚR SAFNI BAGGALÚTS:
ÚR SAFNI — 21. 5. 2002 — Númi Fannsker

Dagur B. Eggertsson, frambjóðandi hefur um nokkurt skeið verið meðlimur í reglu Shaolin-munka hér á landi sér til heilsueflingar. Meðal …

»MEIRA

ÚR SAFNI — 12. 4. 2010 — Enter

Fyrstu viðbrögð lykilleikenda í hruninu eru ýmist „Fokk!“ eða „Hjúkk!“ auk þess sem sumir viðmælenda Baggalúts nefndu alþjóðlegu upphrópunina „LOL!“. Almennt …

»MEIRA

ÚR SAFNI — 9. 10. 2010 — Enter

Íbúar plánetunnar Mars hafa lagt fram formlega kvörtun við borgaryfirvöld í Reykjavík vegna svokallaðrar friðarsúlu. Segja þeir súluna trufla umferð, hræða …

»MEIRA

LESBÓK — Enter — Dagbók
 
LESBÓK — Spesi — Gagnrýni
 
ÚR SAFNI — 13. 4. 2010 — Enter

Rannóknarnefnd Alþingis hefur samþykkt að gera framhald af Skýrslunni svokölluðu, sem slegið hefur rækilega í gegn á landsvísu. Að sögn framleiðanda …

»MEIRA

ÚR SAFNI — 21. 11. 2001 — Enter

Það er okkur heiður að kynna nýjan vef fyrir Ungfrú Islam.is keppnina. Keppnin fer fram 30. nóvember í bænasal Smáralindar. "Þetta …

»MEIRA

ÚR SAFNI — 26. 3. 2009 — Enter

Össur Skarphéðinsson er í 1. sæti á lista yfir 100 dúllubossalegustu stjórnmálamenn heims, 12. árið í röð. Í umsögn dómnefndar segir …

»MEIRA

LESBÓK — Enter — Dagbók
 
LESBÓK — Myglar — Forystugrein
 
ÚR SAFNI — 4. 3. 2014 — Enter

Gengið hefur verið frá upphitunaratriði fyrir fjöllistamanninn Justin Timberlake sem mun halda söngskemmtun í samkomuhúsi í Kópavogi í ágúst. Það er …

»MEIRA

ÚR SAFNI — 18. 11. 2014 — Enter

Tónlistarkennarar hafa ákveðið að grípa til örþrifaráða í kjaradeilu sinni. Í morgun siguðu þeir sérsveit algerlegra óæfðra fiðlunema á samninganefnd sveitarfélaganna …

»MEIRA

ÚR SAFNI — 27. 2. 2011 — Enter

Helgi Engilráðsson, englafræðingur, hefur komist að því að jarðskjálftar eru ekki svokallað „englaprump“. „Í öllu falli ekki hér á Íslandi. Ég …

»MEIRA