Hnignun heims
og harmakvöl
sturlun lýðs og stýfing vits
met ég mannkyns
mesta böl:
Dojsaröss og Djöstforkits
Djöfull nenni ég ekki þessu sífellda tuði og væli allstaðar og allt um kring.
Af hverju fara ekki þessir galandi blogghanar bara og vega hvern annan, eins og alminlegir menn, í stað þess að riðlast sínkt og heilagt á blásaklausum lyklaborðum og úrvinda músum dag- og næturlangt?
Fokkings rugl. Ég er farinn í pottinn.
Engin björg er Bjögga veitt
bannaðar þær flestar.
Flaggskip eitt í Austurhöfn
mun aldrei leysa festar.