Vó. Ţeir sem vilja endilega ríghalda í kristilegt siđgćđi í ađalnámskrá hefđu kannski átt ađ sitja á borđinu međ mér og brísermettu ljóskunum tveim á Ölstofunni á laugardaginn.

Tómas Guđmundsson
Mikiđ er nú rokiđ í henni Reykjavík alltaf velkomiđ og indćlt.
Annađ en skítablásturinn í Kópavoginum, fimbulgarrinn í Mosó eđa andfúlt fjúkiđ úti á Nesi.

Fyrsti málfrćđingurinn
Hinn annars ágćti fréttaţulur, Broddi Broddason (ef ţađ er ţá hans rétta nafn), sagđi í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins-hljóđvarps (eđa RÚV, eins og stjórnleysingjarnir í Efstaleiti vilja af óskiljanlegum ástćđum kalla ţessa stofnun sem viđ, skattborgarar ţessa lands, eigum) ađ tiltekin rćkjuvinnsla vćri „farin á hausinn.” Heyr á endemi! Eru nú sjávarútvegsfyrirtćki úti á landi međ hausa? Eđa er tiltekin rćkjuvinnsla ef til vill farin á haus einhvers annars? Bauhaus kannski? (aths. mylsnudreifara: ţessa skrítlu sendi Mylsnufan - hafi hann ţökk fyrir)
Vitaskuld hefđi áđurnefndur Broddi átt ađ segja ţarna ađ tiltekin rćkjuvinnsla vćri „farin á rassgatiđ,” enda eru ţau bćđi mörg og víđfeđm á sjávarútvegsfyrirtćkjum ţessa lands. Og jafnan trođfull af peningum annarra.
Einnig legg ég til ađ téđur Broddi hćkki róm sinn um eins og tvćr áttundir. Ţessi strigabassalestur verđur til ţess ađ mylsnudreifari ţarf ađ skipta um rafhlöđur í heyrnartćkjum sínum daglega. Heyr á endemi!
Fyrirvari: Efni ţessara skrifa endurspeglar á engan hátt stađreyndir. Ţađ endurspeglar ekki einu sinni skođanir mylsnudreifara. Í raun endurspeglar ţađ ekki nokkurn skapađan hlut.

Dr. Helgi Pjeturss
„Til greina kemur ađ taka upp atriđi fyrir nýja Star Trek-mynd á Íslandi í sumar“ segir í einum falsmiđlanna. Vita ţessir blessuđu blađasnápar ekki ađ sögusviđ Star Trek er ekki bara í fjarlćgum útgeimi, heldur aukinheldur í framtíđinni? Bjálfar.

Sigurđur Nordal
Gleymdi ađ seifa handritiđ ađ ţrekvirkinu „Íslensk menning II.” Aftur! Jćja, ţá er bara ađ byrja upp á nýtt...

Jónas Hallgrímsson
Fari ţađ í hálfhoppandi heitasta helvíti. Á nú ađ klína manni blásaklausum á einhverja peningalufsu? Eina ferđina enn. Hvađ međ Hófí? Hvađ međ Megas? Hvađ međ Baldur fokking Tryggvason?!

Gísli á Uppsölum
Ommnommnommnomm. Ommínommnommnomm. Njommsnjomms. Gommonomminommnomm. Njammsnjamms? Ohohoho hohoho! HAH! Njommimjomm. Ommnommnomm. Tíhíhí.

Jónas Hallgrímsson
Enginn kostur er mér sístur
– allar konur gisti.
Enda kjellinn yfirlýstur
öfgafemínisti.

Sr. Hallgrímur Pétursson
Ef umferđ um líf ţitt er erfiđ og ţung
og illfćrt ađ koma sér héđan.
Leggđu ţá sköfu ađ skeggjuđum pung
uns sköllóttur ertu ađ neđan.
Opnast ţá heimsins hýrasta braut
– hólpinn ţú gengur í burtu.
En ólukkans lággresiđ, lođiđ í graut
liggur í hversdagsins sturtu.

Davíđ Stefánsson
Snert fésbók mína, femínistadís
svo fái ég mér aldrei strákaís.
Viđ stöđu mína kát ţú kommentar
um kynjahalla mjókuriđnađar.
Ef fávitar sem fitla netiđ viđ
hin femínísku gildi setja á biđ.
Ţú karlrembur ţá kallar, nógu hátt
ţá klćđa ţeir sig aldrei meir í blátt.
Ég heyri á fésbók villtan veggjaţyt.
frá valkyrjum sem eru alveg bit.
Snert fésbók mína, femíníska dís
svo fái ég mér kynjafnađan ís.

Hjálmar Jónsson frá Bólu
Handbolti ég hata ţitt
hređjatak á ţjóđarpungnum.
Farđu beint í fúlan pytt
ađ fokkings ţjóđsöngvunum sungnum.

Jesús Kr. Jósepsson
Stundum kemur ţađ sér bara skrambi vel ađ geta fótađ sig á vatni.

Jónas frá Hriflu
Jáhérnabarastahér. „Björt framtíđ?“ Er ţetta virkilega ţađ besta sem flokkaflakkaranum og bestuskinnunum datt í hug? Hvađ međ „Blóm og kanínur“, „Ástarpungarnir“ eđa „Englatásur“? – Hvílík kvođa og vemmivelgja.
Helvíti rennur framsóknarblóđiđ hćgt í ćđum erfđaprinsins.