Mér finnst gott að maula ís,
mikið fínt og gaman.
Mamma er sko í mussu úr flís,
mikið er það gaman.
Er annars að pæla í því hvort þetta „sko“ eigi kannski ekkert heima þarna. Það er náttúrulega danska.
Sætt af honum Tarantónó að bjóða gamla manninum í áramótapartí - og öllum afastelpunum. Þetta kallar á minnst tíræða lofgjörð. Ætli maður splæsi ekki í hexameter fyrir pilt?
Svona fyrir þá sem eru að fara á límingunum út af ráðherraábyrgðinni, þá ákvað pabbi að setja fyrningarmörkin í 350 ár hjá sér.
Fátt er nú um fína þætti
flötum á skjám.
Sáttur væri, ef ég ætti
örlítið klám.