Þjóðbók
Egill Skallagrímsson
egillskall.omniblog.no
Oft hefi ek fullr verið. Aldrei sem í gærkveldi þó. Fokk hvat ek em hellaðr.
Halldór Kiljan Laxness
(Hann:)
Eia!
Eia sameining!
Eia kaupréttarsamningar!
Eia spillíng!
spillíng í OR
hver fór í OR
mætti á stjórnarfundinn og hló
stjórnarfundinn og stjórnarfundinn
og gerðist milli?
Villi!
Kondu Villi
Kondu litli millivilli
að kyssa bíngapínga
uppí OR!

(Borgarbúar:)
Svei attan!


 
Tómas Guðmundsson
Mikið óskaplega voru eldhúsdagsumræðurnar um daginn skemmtilegar. Frábært sjónvarpsefni. Yndislegt alveg hreint. Og mikið var gaman að sjá hvað þingmenn Reykjavíkur báru af landsbyggðarlýðnum.
 
Einar Ben
Skelfilega getur fólk verið skammsýnt. Hér er ég með frábærar tillögur, tímamótatillögur, um að breyta Breiðholtinu í stærsta friðland apa í heiminum. En manni er ekki einu sinni ansað hjá borgarskipulagi. Bévítans molbúar.
 
Jónas Hallgrímsson
fjær ertu fornri
frægð þinni
dallur dóps og sælu
pólsins stjarna
starir niðurlægð
yfir Fáskrúðsfjörð

smygli öngvu eirir
armur laga
upprætir amfetamín
en lyfseðla ljúfa
fær lögregla
aldrei upp tekið
 
Sr. Hallgrímur Pétursson
fallin af mér fögur hönd
fúið eyra
nefið gengið leið og lönd
ljótt að heyra
 
Hjálmar Jónsson frá Bólu
drulluskíta helvískt haust
hata ekkert fremur
djöfuls ömurð endalaust
allar vonir kremur
 
Jóhannes S. Kjarval
Af hverju hefur þetta aldrei hvarflað að mér fyrr? Það er miklu skemmtilegra að tagga á fallegt steinhús en að skælast þetta austur á Þingvelli og mála þennan moðerfokking mosa.
 
Halldór Kiljan Laxness
Ég mæli hiklaust með pönnusteiktum slaungulúngum frá Sörensen kaupmanni, með miklu sméri. Hreinasta lostæti.
 
Sigurður Nordal
Góður vinur minn, lærður mjög og mikilsvirtur bróðir í fræðinum kom til mín, slefandi af geðshræringu og hjúfraði sig upp að mér. Sagði með ekkasogum að hann væri hættur með lávaxna forverðinum með ístruna og tjúguskeggið. Ástæðan? Jú, sá síðarnefndi sagðist fá of mikil útbrot af hugvitsamlegum tilraunum þeirra með ýmis forvörsluefni á leynilegum fundum þeirra í Þjóðdeild Landsbókasafnsins...
 
Jón Sigurðsson
Á nú enn og aftur að fara að sleikja sig upp um bakraufina á þessari bannsettu Evru? Vilja þessir háu herrar ekki bara taka upp danska fánann aftur? Og nýta sér stöðugleika og hagkvæmni þýska þingsins í stað þess íslenska? Franski þjóðsöngurinn er líka æði, af hverju getum við ekki notað hann? Og er ekki upplagt að næla sér í litla, netta, ítalska fjallkonu, frekar en þessar þunglamalegu jussur sem við sitjum uppi með?



 
Sr. Hallgrímur Pétursson
Öngva á ég sokka

(ennþá síður skó)

- en meir en nóg af naflaló!
 
Jóhannes S. Kjarval
Fokk hvað mosi er gegt töff.
 
        1, 2, 3 ... 42, 43, 44, 45, 46, 47  
m.baggalutur.is Facebook Tvítill Tónlist.is iTunes YouTube Instagram RSS
Fréttir
Myglar – 24.04.23
 
Enter – 31.05.21
 
Enter – 22.10.20
 
Lesbók
Enter
 
Úr þjóðbók

feta fjármál
fjandans stigu
velkjast um vegu heljar
öll er upphefð
aldar nýrrar
kaldri fortíð falin

lepja dauða
drambsins þrælar
brátt úr bleikri skel
fallin er króna
fallin æra
Íslands óskabarna

Ég get nú ekki annað en verið himinlifandi með nýjustu myndina um Indiana Jones, enda myndin bersýnilega undir sterkum áhrifum frá kenningum mínum um nýal og hið mikla samband.

Höfuðskeljarnar sem sagan hverfist um hefðu þó að ósekju mátt vera úr kóbalti, því eins og allir sæmilega gefnir menn vita er vonlaust að ná gerkosmísku sambandi um kristal.

Við Gudda kíktum út að éta í gærkvöldi. Maturinn var ágætur sosum, ég fékk mér signa grásleppu á hvannjólabeði og Gudda fékk sér gufusoðnar lambalappir með púðursykurgljáðu skarfakáli. Ágætismatur alveg. Allavega - svo fengum við reikninginn og þá rak mig í rogastans. Tólf krónur fyrir signa grásleppu og sjö krónur og 13 aura fyrir lambalappirnar! Þetta er náttúrulega galið. Sérstaklega í ljós þess að náunginn sem afgreiddi okkur var einhver fjandans útlendingssauður sem ekkert virtist skilja- sennilega kominn hingað frá ...

Baggalútur er hýstur af alúð og umhyggju hjá ADVANIA